Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2025 11:19 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Hvíta húsið/Abe McNatt Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að koma til móts við bílaframleiðendur þar í landi og reyna að milda áhrif tolla hans á starfsemi þeirra. Þannig vill hann gefa þeim meiri tíma til að flytja framleiðslu aftur til Bandaríkjanna en Trump ætlar þó að halda háum tollum á innflutta bíla og bílaíhluti.
Tuttugu og fimm prósenta tollur á innflutta bíla tók gildi í apríl en næstkomandi laugardag mun þessi tollur einnig ná yfir innflutta bílaíhluti. Tollarnir eiga að vera áfram til staðar en samkvæmt frétt Wall Street Journal ætlar Trump að ganga úr skugga um að bílaframleiðendur fá undanþágu gagnvart öðrum tollum eins og tollum á stál og ál. Þar að auki eigi bílaframleiðendur að fá endurgreiðslur vegna tolla á bílaíhluti. Þær greiðslur eiga að vera allt að 3,75 prósent af virði bíls í eitt ár. Hlutfallið fellur svo í 2,5 prósent í ár til viðbótar. Bílaiðnaður Bandaríkjanna er mjög samofinn iðnaði Kanada og Mexíkó. Hver bíll sem framleiddur er í Bandaríkjunum er settur saman úr íhlutum sem margir eru framleiddir í Mexíkó og Kanada og má segja að hver bíll fari margsinnis yfir landamærin áður en hann endar á bílasölu vestanhafs. Búist er við að Trump muni opinbera þessar ætlanir sínar í dag, fyrir ferð til Detroit í kvöld. Vonast er til þess að bílaframleiðendur geti notað þennan tíma til að endurskipuleggja aðfangakeðjur sínar og færa framleiðslu bíla og íhluta til Bandaríkjanna. Forsvarsmenn stærstu bílafyrirtækja Bandaríkjanna hafa lýst yfir ánægju með þessar ætlanir. Verðhækkanir í vændum Greinendur búast fastlega við því að bílaverð muni hækka töluvert í Bandaríkjunum. Starfsmenn Morgan Stanley hafa til að mynda sagt að meðalverð bíls gæti hækkað um sex þúsund dali, sem samsvarar um tíu til tólf prósenta hækkun. New York Times segir að þessar hækkanir muni eiga við bæði nýja og gamla bíla. Viðgerðarkostnaður muni einnig aukast og tryggingargjöld hækka. Trump hefur beitt fjölmörgum og umfangsmiklum tollum frá því hann tók við embætti forseta í janúar. Í mörgum tilfellum hefur hann í kjölfarið breytt um stefnu, lækkað tolla, seinkað þeim eða fellt niður og hafa tollarnir og vendingarnar kringum þá leitt til mikillar óreiðu á mörkuðum um heiminn allan. Sjá einnig: Gefur eftir í tollastríði við Kína Skoðanakannanir sem framkvæmdar hafa verið vestanhafs undanfarna daga, í tilefni af hundrað daga embættistíð Trumps, sýna að kjósendur eru flestir ósáttir við framgöngu forsetans. Fleiri segja hann hafa staðið sig illa í embætti en segja hann hafa staðið sig vel. Þá hafa kjósendur sérstaklega áhyggjur af því að Trump hafi tekið sér of mikil völd og meiri völd en stjórnarskrá Bandaríkjanna veiti honum. Í nýlegri könnun NYT sögðust 55 prósent kjósenda ósáttir við tolla Trumps en þegar kom að svokölluðum óháðum kjósendum var hlutfallið 65 prósent.
Bandaríkin Donald Trump Skattar og tollar Mexíkó Kanada Tengdar fréttir Vilja komast í mjúkinn hjá Bandaríkjaforseta með að gefa honum stórmót Bresk stjórnvöld hafa sett þrýsting á skipuleggjendur Opna mótsins, elsta golfmóts í heimi og eitt fjögurra risamóta golfsins, að halda það á velli í eigu Bandaríkjaforseta í Skotlandi. Þau eru sögð leita allra leiða til þess að komast í mjúkinn hjá forsetanum. 29. apríl 2025 10:33 Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Frjálslyndi flokkurinn í Kanada, flokkur forsætisráðherrans Marks Carney, fór með sigur af hólmi í kanadísku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Enn er of mjótt á munum til að skera úr um hvort Frjálslyndir hafi náð meirihluta í þinginu eða hvort þeir verði að treysta á stuðning frá minni flokkum. 29. apríl 2025 06:33 Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Kjördagur er í Kanada þar sem Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn keppast um meirihluta atkvæðanna. Ákvarðanir Bandaríkjaforseta lituðu kosningabaráttuna en hann gaf í skyn að kjósendur ættu að kjósa hann. 28. apríl 2025 17:47 Áætlun Trump gangi engan veginn upp Hagkerfið er byrjað að kólna og gæti stefnt í kreppu sem að mestu má rekja til breyttrar en óljósrar stefnu Bandaríkjastjórnar í efnahags- og tollamálum. Þetta segir Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. 27. apríl 2025 17:50 Mest lesið Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Viðskipti innlent Rapyd sé íslenskt fyrirtæki með kennitölu frá 1983 Viðskipti innlent Rökrétt að lækka lyfjaverð í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Ráku framkvæmdastjórann og komust svo að rafmyntagreftrinum Viðskipti innlent Þurfi að líta ofar í tekjustigann í næstu kjarasamningum Viðskipti innlent „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Atvinnulíf Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Óttast að háir vextir sogi sparnaðinn til Tenerife Viðskipti innlent Djúpstæður metnaður til að skapa fjölskylduvænt umhverfi Viðskipti Hefja viðskipti með bréf í Alvotech í Stokkhólmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Íslenskt sund í New York Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Ríkið eignast hlut í Norwegian Hækkanir á Asíumörkuðum Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Bretar fyrstir til að semja við Trump Hyggja á opnun nýs Disney-skemmtigarðs í Abú Dabí Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni Buffett hættir sem forstjóri við lok árs Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Mikill samdráttur á pöntunum til kínverskra verksmiðja Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla Amazon í samkeppni við SpaceX í geimnum Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims Gefur eftir í tollastríði við Kína ESB sektar Apple og Meta um rúma hundrað milljarða Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör Spá minni hagvexti um nær allan heim vegna tolla Bandaríkjastjórnar Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Heimsskortur á pistasíum vegna Dúbaí-súkkulaðis Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Sjá meira
Vilja komast í mjúkinn hjá Bandaríkjaforseta með að gefa honum stórmót Bresk stjórnvöld hafa sett þrýsting á skipuleggjendur Opna mótsins, elsta golfmóts í heimi og eitt fjögurra risamóta golfsins, að halda það á velli í eigu Bandaríkjaforseta í Skotlandi. Þau eru sögð leita allra leiða til þess að komast í mjúkinn hjá forsetanum. 29. apríl 2025 10:33
Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Frjálslyndi flokkurinn í Kanada, flokkur forsætisráðherrans Marks Carney, fór með sigur af hólmi í kanadísku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Enn er of mjótt á munum til að skera úr um hvort Frjálslyndir hafi náð meirihluta í þinginu eða hvort þeir verði að treysta á stuðning frá minni flokkum. 29. apríl 2025 06:33
Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Kjördagur er í Kanada þar sem Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn keppast um meirihluta atkvæðanna. Ákvarðanir Bandaríkjaforseta lituðu kosningabaráttuna en hann gaf í skyn að kjósendur ættu að kjósa hann. 28. apríl 2025 17:47
Áætlun Trump gangi engan veginn upp Hagkerfið er byrjað að kólna og gæti stefnt í kreppu sem að mestu má rekja til breyttrar en óljósrar stefnu Bandaríkjastjórnar í efnahags- og tollamálum. Þetta segir Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. 27. apríl 2025 17:50
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent