Sannleikurinn í tengdamömmumálinu Ólöf Björnsdóttir skrifar 7. apríl 2025 09:03 Sannleikurinn er sagna bestur. Ég er umrædd tengdamamma í hinu umdeilda máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur og þar eru ýmis atriði sem mér þykir að þurfi að skýra. Ég kem ávallt hreint fram og hef lýst því áður, og geri það aftur hér, að ég taldi ekki viðeigandi að Ásthildur Lóa sinnti starfi barnamálaráðherra - vegna hennar forsögu og framkomu hennar við barnsföður sinn. Manni sem bjó undir mínu þaki og ég hef þekkt í yfir þrjátíu ár. Þess vegna veit ég að Ásthildur Lóa og Eiríkur Ásmundsson áttu sannarlega í sambandi þegar Ásthildur Lóa var 22 ára og Eiríkur 15 ára, jafnvel þó hann væri nýorðinn 16 ára þegar barn kom undir. Þetta viðurkenndi Ásthildur Lóa þegar hún hringdi í mig í fyrsta sinn til að ræða þetta mál. Það gerði hún í vitna viðurvist mín megin sem geta staðfest það. Ásthildur Lóa var á þessum tíma byrjuð í kennaranámi í háskóla. Eiríkur að útskrifast út grunnskóla. Eiríkur kemur af brotnu heimili. Æska hans var þrautarganga og unglingsárin reyndust honum afar þung. Ákveðin vonarglæta birtist honum þegar hann sá auglýstar unglingasamkomur í trúarsöfnuðnum Trú og líf, þrátt fyrir að hafa í reynd aldrei ræktað kristna trú. Þar kynntist hann barnsmóður sinni. Hún hafnar því að hafa verið í hlutverki einhvers konar leiðbeinanda. Hvað svo sem safnaðarmeðlimur á fullorðinsaldri hefur verið að gera á vikulegum unglingasamkomu, án þess að unglingar teldu hana þar í hlutverki leiðbeinanda og fulltrúa eldri safnaðarmeðlima, fæ ég illa skilið. Fólk hefur velt því fyrir sér hvers vegna ég lagði upp í þá vegferð að senda forsætisráðherra erindi um forsögu Ásthildar Lóu. Ástæðan er einfaldlega sú að mér brá þegar ég sá að hún væri orðin barnamálaráðhera. Og mér brá enn meira þegar ég skoðaði vefsíðu Alþingis þar sem hún segist eiga tvö börn með eiginmanni sínum. Það er einfaldlega ekki rétt. Eldra barnið á hún með Eiríki Ásmundssyni, sem fékk hvorki að hitta barn sitt né umgangast. Eiríkur bjó í mínum húsum hluta af fyrstu árum sonar hans. Ég upplifði angist hans á þessum tíma yfir að fá ekki að vera faðir sonar síns. Ásthildur Lóa bjó í nágrenni við okkur á þeim tíma og hefði verið í lófa lagið að skoða aðstæður. Eiríkur og dóttir mín eiga saman dóttur fædda 1993. Hann hefur alltaf verið til staðar fyrir dóttur sína. Hann á með núverandi konu sinni fjóra stráka, einn þeirra ættleiddi Eiríkur. Eiríkur sagði sjálfur sína sögu í samtali sem vitnað var til í fréttum RÚV 20. mars 2025. Þar sagðist Eiríkur hafa orðið fyrir tálmun og lagði fram bréf frá dómsmálaráðuneytinu og fjölskyldudeild kirkjunnar. Eiríkur fór í gegnum formlegt ferli innan kerfisins en það var ekki nóg, Ásthildur Lóa tók það ekki til greina, hún tók ekkert til greina. Það er þess vegna ótrúlegt að heyra hana halda því fram að hún hafi ekki tálmað umgengi Eiríks við son sinn. Að Eiríkur hafi ekki sýnt syni sínum áhuga, á sama tíma og hún hefur lýst því að hún hafi ekki treyst honum til þess að taka barnið, þegar hann óskaði eftir því. Krafa Ásthildar Lóu á umræddum sáttafundi fólst í því að Eiríkur fengi ekki meiri umgengni við son sinn en fælist í því að Eiríkur kæmi inn á hennar heimili í tvo klukkutíma fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Þegar svo á reyndi, gekk Eiríki illa að fá samkomulagið efnt. Þegar fyrsta sunnudag mánaðar bar upp á tíma sem ekki hentaði Ásthildi Lóu, tók hún ekki í mál að leyfa Eiríki og syni hans að hittast helgina á eftir. Eftir nokkrar slíkar skyndilegar afboðanir varð Eiríki ljóst að barnsmóðir hans, hefði lítinn ef nokkurn áhuga á því að hann væri partur af lífi sonar síns og stæði beinlínis í vegi fyrir því. Honum var ekki einu sinni gefið tækifæri. Einhverra hluta vegna hefur líka verið litið fram hjá aðstöðumuni þeirra tveggja í þessu samhengi. Ásthildur Lóa var þarna orðin gift kona, að útskrifast úr háskólanámi. Eiríkur var átján ára að reyna að fóta sig, upp á eigin spýtur, í lífinu. Í þessu máli hefur fólk hins vegar kosið að trúa ekki barnsföður Ásthildar Lóu. Þess í stað hefur það tekið hennar frásögn, í hreint makalausri yfirlýsingu, sem algildum sannleik. Þeir sem það gerðu mættu horfa fastar í augu við eigin samvisku, hafandi litið fram hjá eða góðkennt ótrúlega ósmekklegan áburð og dylgjur. Hvað vilja menn annars kalla frásögn ráðherrans fyrrverandi þegar hún ber upp á ungling sem þá var um það bil að útskrifast úr grunnskóla, að hafa sýnt háskólanemanum henni slíkan sjúklegan áhuga, eltihrellt hana, að hún sá sér þann kost einan að hefja við hann samband? Eiríkur ætlar ekki að tjá sig meira um þetta mál. Hann vildi ekki lesa þessi orð sem ég rita hér, en setti sig ekki upp á móti því að greinin yrði birt. Hann hefur aldrei talað illa um Ásthildi , hvorki fyrr né síðar, í mín eyru - jafnvel ekki öll árin sem hann fór fram á umgengni en fékk ekki. Spurningin af hverju hann barðist ekki meira fyrir barninu er spurning sem er að vissu leyti svarað í grein eftir Sigríði Sólan Guðlaugsdóttur, Tálmun þrífst í þögn nærsamfélagsins, sem birtist undir Skoðun á Vísi þann 25. mars 2025. Ég hvet alla til að lesa þessa grein, það gæti hjálpað mörgum, bæði sem tálma og verða fyrir tálmun. Það væri lag að allir sem þurfa að tjá sig um þetta mál lesi tímalínuna sem hefur komið fram í fjölmiðlum en þar sést að á vissan hátt var ég að hlífa Ásthildi Lóu Þórsdóttur. Mín von var að með fundarbeiðni minni til forsætisráðherra, gæfist Ásthildi Lóu tækifæri til að stíga sjálf úr stóli barnamálaráðherra. Málið yrði ekki rætt frekar af minni hálfu. Þetta gerði ég líka í þeirri viðleitni að vernda Eirík, sem vissi ekki af þessum samskiptum mínum við forsætisráðuneytið. Mér kom ekkert við hvort Ásthildur Lóa skipti um embætti eða hvort málaflokkur barna og barnaverndar hefði flust yfir til annars ráðherra. En þegar ég hugsa til slíkra skipta í dag á ég erfitt með að sjá hvaða embætti hefði hentað henni, varla dómsmála eftir ummæli hennar um dómskerfið, erfitt að sjá hana í félagsmálaráðuneytinu eftir sérmeðferð varðandi húsakaup, meðferð sem ekki var hægt að veita öðrum sem hún var að berjast fyrir. Mér var heitinn trúnaður en sannleikurinn hentaði ekki Ég vil lýsa stórkostlegri furðu á vinnubrögð forsætisráðuneytisins, sem varpa líka ljósi á öryggisbresti þar innanhúss. Það liggur fyrir að ég hringdi í forsætisráðuneytið. Það gerði ég í þeim tilgangi að óska eftir upplýsingum um hvort farið væri með erindi sem þangað berast í gegnum tölvupóst sem trúnaðarmál. Svarið var já. Ég vildi að það væri algjörlega öruggt og spurði aftur, því ég vildi ekki að þessar upplýsingar færu um borg og bý. Aftur staðfesti starfsmaðurinn það. Símtalið var fjögurra mínútna langt - hvað annað átti ég að ræða í þessar fjórar mínútur við starfsmann í símsvörun? Forsætisráðherra sendi fjölmiðlum síðan yfirlýsingu þar sem því er hafnað að trúnaði hafi verið lofað. Ráðherra kaus þó að taka ekki fram að símtöl til ráðuneytisins væru ekki hljóðrituð, líkt og ég komst síðar að. Ráðherrann spurði mig aldrei út í þetta símtal, heldur aðeins starfsmann Umbra, sem sinnir símsvörun fyrir stjórnsýslu landsins. Sannleikurinn hentaði ráðherranum ekki í þessu máli. Það má líka setja stórt spurningamerki við að eðlileg öryggisráðstöfun líkt og hljóðritun símtala sé ekki til staðar hjá ráðuneytum landsins. Aðstoðarmaður forsætisráðherra afhenti barnamálaráðherra upplýsingar um erindi mitt og umkvörtun, auk persónuupplýsinga um mig. Um það er ekki deilt. Enda liggur fyrir að barnamálaráðherra bæði þráhringdi í mig og mætti heim til mín að kvöldlagi, óboðin. Ekkert af þessu hefði gerst ef forsætisráðherra hefði ekki brugðist í þessu máli. Þvælan þrífst í þögguninni Tálmun þrífst í þögninni og þvælan í þögguninni. Staðreyndir eru kæfðar niður og ekkert nema samsæriskenningar komast að, í umræðu sem litast af tilfinningum og heift. Það er leitun að öðru eins bulli og hefur fengið að grassera á samfélagsmiðlum. Ég ákvað upp á mitt einsdæmi að senda erindi á forsætisráðuneytið um forsögu Ásthildar Lóu og upp á einsdæmi sendi ég þetta sama erindi á fréttamann sem ég treysti, eftir að ráðuneytið hafnaði því að veita mér áheyrn. Ég var ekki að ganga erinda eins eða neins eins og ítrekað hefur verið haldið fram á samfélagsmiðlum. Það er ekkert leyndarmál að ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, ég var Vilmundarkona á sínum tíma og Jóhanna Sigurðardóttir gerði margt gott, Vinstri græn hef ég líka kosið en aldrei Sjálfstæðisflokkinn. Síðast kaus ég Samfylkinguna en ég er ekki búin að ákveða mig hvað ég kýs næst en það verður ekki Flokkur fólksins. Og þetta er sannleikurinn í tengdamömmumálinu. Ólöf Björnsdóttir, sjúkraliði með BA í sálfræði og er að vinna að meistararannsókn í fötlunarfræðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Barnamálaráðherra segir af sér Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun