Rafrettur hafi langvarandi afleiðingar á lungu, heila og hjarta Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. apríl 2025 14:30 Langtímarannsóknir um áhrif rafretta eru skammt á veg komnar en þrátt fyrir það eru komnar fram vísbendingar um langvinnar heilsufarslegar afleiðingar á lungu, hjarta og heila. AP/Craig Mitchelldyer Vísbendingar eru komnar fram um að rafsígarettureykingar hafi langvinnar heilsufarslegar afleiðingar á lungu, hjarta og heila. Rannsóknir sýna að rafsígarettur hafa ekki reynst gagnlegar til að hætta sígarettureykingum og tilhneigingin sé þvert á móti að innbyrða meira nikótín.
Þetta kemur fram í svari á Vísindavefnum við spurningunni „Er eitthvað vitað um langtímaafleiðingar rafrettureykingar?“ Höfundar svarsins eru Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum; Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum við HÍ og Tómas Guðbjartsson, prófessor í skurðlækningum við HÍ. Rafrettur hófu að ryðja sér til rúms hérlendis fyrir um rúmum tíu árum.vísir/getty Rekja megi sögu rafretta aftur til 1965 þegar Bandaríkjamaðurinn Herbert A. Gilbert fékk einkaleyfi fyrir „reyklausa sígarettu án tóbaks“ sem hitaði upp rakt bragðbætt loft. Rafsígarettur í núverandi mynd komu ekki til sögunnar fyrr en 2004 þegar fyrstu rafretturnar komu á markað í Kína. Í svarinu segir að tiltölulega stutt sé síðan rafsígarettur ruddu sér til rúms og því erfitt að segja til um öll langtímaáhrif. Helstu lífstílssjúkdómar komi fram áratugum eftir að fólk er útsett fyrir óheilbrigðum lífsstíl og sýna þurfi fram á orsakasamband með rannsóknum sem taki enn fleiri áratugi að leiða til lykta. Þrátt fyrir það séu vísbendingar um að rafsígarettureykingar hafi langvinnar heilsufarslegar afleiðingar, sérstaklega á lungu, hjarta og heila. Berkjubólgur, langvinnir lungnasjúkdómar og lungnakrabbi Fyrst eru áhrif á lungu rakin en í svarinu segir að fjöldi efna berist með rafsígarettureyk, til dæmis þungmálmar, lífræn efnasambönd og bragðefni. Slík efni geti sett af stað bólgusjúkdóm í lungum og skaðað þau með margvíslegum hætti. „Ungt fólk sem byrjar að veipa er líklegra til að þróa með sér bólgusjúkdóm í öndunarfærum, til dæmis viðvarandi astma eða berkjubólgu með tilheyrandi ertingu í öndunarvegi, hósta, aukinni sýkingarhættu og öndunarfæraerfiðleikum,“ segir í svarinu. Faraldur lungnasjúkdómsins EVALI (e. E-cigarette or vaping-associated lung injury) hafi komið upp 2019 þar sem þúsundir rafsígarettunotenda þróuðu með sér lífshættulegan lungnaskaða. „Meginskaðvaldurinn var rakinn til vítamín E acetate-olíu sem leyndist í ólöglegum rafsígarettuvökva,“ segir í svarinu. Helstu langtímaáhrifin sem vísindamenn hafi áhyggjur af sé langvinnur lungnasjúkdómur (e. COPD) og lungnakrabbamein. Genarannsóknir hafi sýnt að nikótínviðtakar í lungum tengist lungnakrabbameini með því að hafa áhrif á frumuendurnýjun og sjálfsát. Þar að auki hafi krabbameinsvaldandi efni fundist í rafsígarettuvökva, til dæmis formaldehýð, asetaldehýð, akrólein og nítrósamín, sem geti skaðað erfðaefni og valdið stökkbreytingum, fyrstu skrefum krabbameinsmyndunar. Höfundar taka sem dæmi rannsókn þar sem mýs voru útsettar fyrir rafsígarettuvökva og þróuðu með sér lungnakrabbamein. „Vert er að geta þess að margir nota veip samhliða sígarettureykingum, sem getur haft samlegðaráhrif á þann hátt að hætta á lungnasjúkdóm eykst meira en ef annað hvort væri eingöngu notað. Auka hjartslátt, blóðþrýsting og álag á æðakerfið Áhrif rafsígaretta á hjartað tengjast nikótíni sem „eykur hjartslátt og blóðþrýsting og ýtir undir streituástand í líkamanum með tilheyrandi auknu álagi á hjarta og æðakerfi.“ Nikótín hafi einnig æðaherpandi og vísbendingar séu um að daglegar rafsígarettureykingar geti dregið úr blóðflæði til hjartans við álag, aukið stífleika æða og ýtt undir æðakölkun. Þau áhrif geti aukið hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, meðal annars hjartaáfalli og hjartabilun. Rafrettur eru ekki eins útbreiddar og þar væru fyrir nokkrum árum.Vísir/Getty Minnst er á eina rannsókn í svarinu þar sem segir að hjartabilunareinkenni hafi sést eftir að einstaklingar önduðu að sér rafsígarettuvökva í sjö mínútur, bæði í hvíld og við líkamlegt álag. Bragðefni rafretta eru einnig talin hafa eitrunaráhrif á hjartavöðva og æðakerfið. Dýrarannsóknir hafi sýnt að bragðefnin geta ýtt undir hjartsláttaróreglu með því að breyta raf- og byggingarendurnýjunarferli hjartavöðvans. Því sé ljóst að vísbendingar séu um að rafsígarettureykingar geti aukið nokkra áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, líkt og sígarettureykingar. Þungmálmar í rafrettum geti haft óafturkræfum áhrifum Loks er farið yfir áhrif nikótíns og rafretta á heilann. Nikótín skerði þroska og starfsemi heilans, sérstaklega hjá börnum og ungmennum sem séu að taka út þroska langleiðina til þrítugs. Rannsóknir á dýrum sýna að nikótín getur endurvírað taugabrautir í framheilanum þannig að athyglisgáfa minnkar, hvatvísi eykst og skapsveiflur koma fram við lítið tilefni. Aðrar dýrarannsóknir hafi sýnt að nikótín trufli eðlilegan þroska heilans sem geti leitt til vitsmunaskerðingar og hegðunarvandamála. Vísindamenn hafi til viðbótar haft áhyggjur af lífshættulegu magni þungmálma sem mælist reglulega í rafsígarettuvökva, til dæmis blýi, arseni, krómi og nikkeli. „Blý getur haft óafturkræf skaðleg áhrif á heilastarfsemi, sérstaklega hjá börnum, en á því eru engin örugg mörk. Blý er þessi eðlis, að þegar það er komið í líkamann, þá situr það fast þar,“ segir í svarinu. Loks segir í svarinu að söluaðilar kynni rafsígarettur sem öruggan valkost í samanburði við sígarettur. Rafrettur séu skaðminni en sígarettur en langt frá því að vera skaðlausar. „Framtíðin á þó eftir að leiða betur í ljós hversu skaðlegar rafsígarettur raunverulegar eru, því rannsóknir á langtímaáhrifum eru skammt á veg komnar,“ segir í svarinu. Rannsóknir hafi þó sýnt að rafsígarettur hafa ekki reynst gagnlegar til að hætta sígarettureykingum. Þvert á móti er tilhneigingin sú að innbyrða meira nikótín, en eingöngu var gert með sígarettum. Rafretta eða sígaretta? Kannski bæði.
Rafrettur Heilbrigðismál Krabbamein Heilsa Tóbak Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Sjá meira