Með kaupunum á sænska líftæknifyrirtækinu Xbrane Biopharma AB, sem var stofnað á árinu 2008 og er með yfir sextíu starfsmenn, segist Alvotech vera að auka afkastagetu sína í þróun nýrra líftæknilyfjahliðstæða, styrkja stöðu sína sem leiðandi afl á því sviði og koma sér fyrir innan líftækniiðnarins í Svíþjóð. Alvotech tekur yfir aðstöðu og búnað Xbrane, við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og starfsfólk í þróunardeild fyrirtækisins sem telur um 40 manns.
Þá mun Alvotech jafnframt með kaupunum eignast allt lyfjahugvit Xbrane tengt fyrirhugaðri hliðstæðu sænska félagið við Cimizia (certolizumab pegol). Frumlyfið er notað til meðferðar við sjálfsónæmissjúkdómum eins og psóríasis og liðagigt, en tekjur af sölu þess á síðasta ári námu samtals nærri 300 milljörðum króna.
Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane auka enn frekar afkastagetu okkar í þróun nýrra lyfja, á sama tíma og Alvotech ætlar að fjölga verulega starfsfólki við lyfjaþróun á Íslandi.
Alvotech mun ljúka við þróun hliðstæðulyfsins og stefnir að því að setja það á markað á árinu 2028. Samhliða kaupunum mun Alvotech í framhaldinu skoða mögulega skráningu í kauphöllinni í Stokkhólmi með útgáfu sænskra heimildaskírteina.
Í tilkynningu Alvotech í morgun kemur fram að umsamið kaupverð sé um 275 milljónir sænskra króna, jafnvirði um 3,6 milljarðar íslenskra króna. Það felur í sér annars vegar rúmlega 102 milljónir greiddar í reiðufé en afgangurinn með yfirtöku skulda, þar sem meirihlutinn er greiddur með eigin bréfum.
Xbrane er skráð á hlutabréfamarkað í Svíþjóð og hækkaði hlutabréfaverð félagsins mest um liðlega 70 prósent í morgun. Hækkunin þegar þetta er skrifað nemur um 40 prósent og stendur markaðsvirði félagsins miðað við núverandi gengi í um 330 milljónum sænskra króna – en til samanburðar er markaðsvirði Alvotech nálægt 500 milljörðum íslenskra króna. Á síðasta ári námu heildartekjur Xbrane um 200 milljónum sænskra króna.
Þá kemur fram í tilkynningunni að Xbrane muni halda réttindum að tveimur verkefnum sem félagið hefur unnið að og verði áfram skráð á markað þar í landi. Starfsmönnum Xbrane verða boðin störf í rannsóknar- og þróunardeild Alvotech í Stokkhólmi.
Stjórn Xbrane hefur samþykkt söluna til Alvotech. Auk stjórnarmanna, hafa stórir fjárfestar í hluthafahópi Xbrane skuldbundið sig til að greiða atkvæði með sölunni á hluthafafundi sem fer fram 14. apríl næstkomandi. Reiknað er með að kaupin muni klárast í lok apríl.
Fjöldi líftæknifyrirtækja í Svíþjóð sá annar mesti í heiminum
Róbert Wessman, stofnandi, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech, segir í tilkynningu að félagið sé nú þegar í hópi leiðandi fyrirtækja á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.
„Velta þeirra frumlyfja sem Alvotech þróar hliðstæður við er umtalsvert meiri en hjá nokkrum keppinaut okkar. Við ætlum að halda áfram að fjölga lyfjum í þróun og þar með bæta aðgengi sjúklinga að líftæknilyfjum í hæsta gæðaflokki,“ segir Róbert, og bætir við:
„Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane auka enn frekar afkastagetu okkar í þróun nýrra lyfja, á sama tíma og Alvotech ætlar að fjölga verulega starfsfólki við lyfjaþróun á Íslandi. Fjöldi líftæknifyrirtækja í Svíþjóð er sá annar mesti í heiminum á eftir Bandaríkjunum. Aðgengi að reyndu starfsfólki er því gott og jafnframt opnast möguleikar á frekara samstarfi við önnur sænsk líftæknifyrirtæki. Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane er því mikilvægt skref sem treystir enn frekar leiðandi stöðu okkar í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.“
DNB Carnegie eru fjárhagslegir ráðgjafar Alvotech við kaupin á Xbrane.