Liverpool tilkynnir um risasamning við Adidas Valur Páll Eiríksson skrifar 10. mars 2025 11:00 Yfirstandandi leiktíð er sú síðasta hjá Liverpool í Nike-treyjunni. AP Photo/Dave Thompson Liverpool á Englandi hefur tilkynnt um samning félagsins við íþróttavöruframleiðandann Adidas. Liðið mun því leika í Adidas-treyjum frá og með næstu leiktíð.
Í tilkynningu Liverpool um samninginn kemur lengd samningsins við Adidas ekki fram en að hann sé til langs tíma. Liverpool skiptir því úr Nike yfir í Adidas fyrir næstu leiktíð. The Athletic segir frá því að Liverpool hafi fengið um 60 milljónir punda, rúmlega tíu og hálfan milljarð króna, árlega vegna samningsins við Nike undanfarin fimm ár en samstarfið við Adidas feli í sér töluverð hærri greiðslur til félagsins. Áður lék Liverpool í Adidas frá 1985 til 1996 og aftur frá 2006 til 2012. Fernando Torres gerði það gott í Adidas-treyju Liverpool á sínum tíma.Alex Livesey/Getty Images Liverpool leikur áfram í treyjum frá Nike út yfirstandandi leiktíð áður en samningurinn við Adidas tekur gildi 1. ágúst næst komandi. Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, með 15 stiga forskot á Arsenal sem er í öðru sæti. Á þriðjudag spilar liðið við Paris Saint-Germain í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu og mætir Newcastle United í úrslitaleik deildabikarsins á sunnudaginn. Vera má því að liðið vinni til þriggja titla á síðustu leiktíð liðsins í Nike-treyjunum. Liverpool Football Club and adidas have agreed a new multi-year partnership that will see the sportswear giant once again become the club's official kit partner from 1st August 2025 🔴— Liverpool FC (@LFC) March 10, 2025
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið „Hugur minn er bara hjá henni“ Íslenski boltinn Aubameyang syrgir fallinn félaga Fótbolti „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ Körfubolti Dagskráin í dag: Hvað gerir Man United? Sport „Þetta var skrýtinn leikur“ Íslenski boltinn Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Körfubolti „Fáránlega erfið sería“ Körfubolti Fimmtán ára KR-ingur tók metið af Eiði Smára: Fær hæfileikana frá mömmu Íslenski boltinn „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ Íslenski boltinn Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Newcastle upp í þriðja sætið Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Van Dijk býst við mjög viðburðaríku sumri hjá Liverpool Chelsea eyddi tíu milljörðum í umboðsmenn Lélegasta lið Man United frá upphafi ensku úrvalsdeildarinnar Þjálfari Newcastle að jafna sig eftir lungnabólgu Rory vill veita leikmönnum Man United innblástur Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik „Einbeitum okkur að fimmtudeginum“ Slæmur dagur hjá Rauðu djöflunum á St. James Park Náðu ekki tveimur titlum á tveimur dögum Sancho bjargaði andliti Chelsea gegn Ipswich Van Dijk skoraði undir lokin og Liverpool með níu fingur á bikarnum Fjórði sigur Úlfanna í röð Enginn komið að fleiri mörkum á 38 leikja tímabili en Salah Hörð keppni um Delap í sumar Onana ekki með gegn Newcastle „Hann hefði getað fótbrotið mig“ Howe lagður inn á spítala og missir af leiknum Skytturnar skildu jafnar við Býflugurnar Jason skoraði í svekkjandi jafntefli Dramatík í Nottingham, Leicester fékk loks stig og Asensio klúðraði tveimur vítum Vonir Plymouth glæðast og Leeds á toppinn Ótrúleg endurkoma hjá City í sjö marka leik Amorim íhugar að henda Onana á bekkinn Grealish og Foden líður ekki vel Postecoglou: Það er leki í félaginu Gat farið hvert sem er en valdi að vera hjá okkur „Stöð 2 Sport er enski boltinn“ Cantona telur Ratcliffe vera að eyðileggja Manchester United Sjá meira