Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. febrúar 2025 06:57 Ráðamenn Evrópu hafa ítrekað að það verði ekki samið um framtíð Úkraínu án Úkraínumanna. AP/Christophe Petit-Tesson Stjórnvöld í sjö Evrópuríkjum sendu frá sér yfirlýsingu í gær þess efnis að þau þyrftu að eiga aðild að viðræðum um endalok átaka í Úkraínu, sem og ráðamenn þar í landi.
Það ætti að vera sameiginlegt markmið að Úkraína gengi til viðræðna í sterkri stöðu. Ganga þyrfti úr skugga um að öryggi Úkraínu yrði tryggt, svo og varanlegur friður. Yfirlýsingin, sem einnig var undirrituð af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, var send út eftir fund utanríkisráðherra í París og í kjölfar fregna þess efnis að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði rætt við Vladimir Pútín Rússlandsforseta um að hefja viðræður um Úkraínu. Ráðamenn í Evrópu eru sagðir hafa nokkrar áhyggjur af því að Trump og Pútín séu að ræða og semja um eitthvað sem varðar öryggi og stöðugleika í álfunni, án þeirra aðkomu. Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, sagði til að mynda í gær að það gæti ekki orðið varanlegur friður í Úkraínu án aðkomu annarra Evrópuríkja. Þá ítrekuðu utanríkisráðherrar Þýskalands og Spánar að engar ákvarðanir yrðu teknar um Úkraínu án aðkomu Úkraínumanna. Spurð að því í gær hvaða Evrópuríki ættu aðild að þeim viðræðurm sem Trump hefur boðað svaraði fjölmiðlafulltrú hans Karoline Leavitt að hún gæti ekki nefnt neina þjóð eins og er. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, mun funda með ráðherrum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í vikunni en hann hefur útilokað aðild til handa Úkraínu. Þá sagði hann í gær að það væri óraunhæft að ætla að Úkraína myndi endurheimta landamæri sín eins og þau voru áður en Rússar tóku Krímskaga árið 2014.
Úkraína Bandaríkin Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður NATO Mest lesið „Við vitum að þessu er stjórnað af Áslaugu Örnu“ Innlent Lýsir ógnarástandi í bekk dóttur sinnar: „Ofbeldið er enn þá alvarlegra en fólk heldur“ Innlent Svekktar og reiðar yfir viðbrögðum veitingamannsins Innlent Ók á fólk á götum München: Segja að um árás sé að ræða og 27 eru særðir Erlent Segist draga andann vegna staðsetningar flugvallarins Innlent Flugfélögum verði skylt að afhenda farþegalista Innlent Vill auka eftirlit með þungaflutningum Innlent Trump stjórnarformaður Kennedy miðstöðvarinnar og listamenn flýja Erlent Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Erlent Samúel Jói og Shamsudin-tvíburarnir á leið í steininn Innlent Fleiri fréttir Sebrahestur gengur laus á Jótlandi Trump stjórnarformaður Kennedy miðstöðvarinnar og listamenn flýja Ók á fólk á götum München: Segja að um árás sé að ræða og 27 eru særðir Danir telja Rússa geta hafið stórstríð í Evrópu á allra næstu árum Tólf særðir eftir að handsprengju var kastað í Grenoble Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Trump segir samningaviðræður um Úkraínustríðið hefjast strax McConnell greiddi atkvæði gegn Gabbard Kanna fullyrðingar hjúkrunarfræðings sem sagðist drepa Ísraela Útilokar aðild Úkraínu að NATO og krefur Evrópu um meira Telja Andersson hafa skotið fólk af handahófi Skotflaugar féllu á Kænugarð Krókur Dana á móti bragði sem vilja kaupa Kaliforníu af Trump Veitti Musk og DOGE meiri völd til niðurskurðar Dómari birtir nafn sæðisgjafa til að vara við honum og öðrum Segir Arabaríkin sameinuð í andstöðu sinni við hugmyndir Trump Samkomulagi um vopnahlé verði rift verði gíslunum ekki skilað Rússar láta bandarískan kennara úr haldi Óttast að átök verði að stóru stríði Neituðu að skrifa undir yfirlýsingu um gervigreind Sakar Tate-bræður um að þvinga sig til kynlífsvinnu Uppgjör milli Hvíta hússins og dómstóla í vændum Kennari stakk átta ára stúlku til bana Fundust látnir í tjaldi á hæsta fjalli Svíþjóðar Skurðlæknir grunaður um kynferðisbrot gegn 299 börnum Girnist Gasa og vill íbúana burt Segja Ísraela hafa brotið vopnahléssamninginn Ítrekar að honum er alvara um Kanada Forsetinn segir af sér Kölluðu Páfagarð „siðspilltan“ og „barnaníðs“ ríki Sjá meira