Svekktar og reiðar yfir viðbrögðum veitingamannsins Lovísa Arnardóttir skrifar 12. febrúar 2025 23:29 Silva í partýinu fyrir blótið og svo fjölskyldan saman á þorrablótinu. Aðsendar Ásta Þórdís Skjalddal, varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er svekkt og reið yfir viðbrögðum veitingamannsins, Árna Bergþórs Hafdal Bjarnasonar, eiganda Veisluþjónustu Suðurlands, sem sá um veitinga á þorrablótum í Ölfusi og Borg í Grímsnesi.
Ásta var á þorrablótinu í Grímsnesi með fjölskyldu sinni. Níu af fjórtán fjölskyldumeðlimum urðu veik af matareitrun og þar á meðal dóttir Ástu, Silva Ásthildur Skjalddal, sem varð mjög veik og frá vinnu í heila viku. Alls veiktust um 140 manns á þorrablótunum í Borg og í Ölfusi sem fóru fram sömu helgina. Veisluþjónusta Suðurlands sá um veitingarnar á báðum blótum. Niðurstaða rannsóknar MAST leiddi í ljós að veisluþjónustan var ekki með starfsleyfi, aðstaða til handþvottar var ekki fullnægjandi, að kælikeðja matvælanna rofnaði á þorrablótunum og maturinn hafði staðið í töluverðan tíma án kælingar. Niðurstöður sýna frá fólki og úr matvælum bentu jafnframt til þess að orsakavaldur hópsýkingarinnar gæti verið svokallaður enteropathogenic E. coli (EPEC) og/eða Bacillus cereus-bakteríur sem fundust í sviða- og svínasultu sem var í boði á blótinu. Ekki tókst að rannsaka öll matvælin þar sem eitthvað kláraðist eða hafi verið hent. „Ég fór heim um tvö og þetta var allt byrjað svona hálf fjögur, fjögur. Þá byrjaði ég bara í rauninni að pissa með rassinum,“ segir Silva í samtali við fréttastofu. Hún segist ekki hafa leitað sér læknisaðstoðar vegna þess að vinkona hennar hafi verið búin að því og hafi fengið leiðbeiningar vegna matareitrunar. Silva taldi þá nærri öruggt að þær væru að glíma við það sama og fór eftir sömu leiðbeiningum. „Ég hélt fyrst að þetta væri bara ég. En vinkona mín fékk um 39 stiga hita og ég fékk vægan hita.“ Silva er enn í dag að glíma við eftirköst matareitrunarinnar.Aðsend Enn slæm í maganum Tólf dagar eru frá því að hún veiktist en hún segist enn vera að glíma við eftirköst veikindanna og þurfi sem dæmi að passa hvað hún borðar. „Ég borða eiginlega bara skyr, grænmeti og ávexti. Ég prófaði að fá mér kjöt um daginn en það fór heiftarlega í magann á mér. Ég varð mjög lasin það kvöld,“ segir Silva. Hún segir niðurstöður rannsóknar MAST ekki hafa komið henni á óvart. Hún segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með viðbrögð veitingamannsins í viðtali á sunnleska.is. „Ég var frá vinnu í heila viku. Vinnuveitandi minn sýndi þessu mikinn skilning. Maður veit alveg að þetta getur gerst en viðbrögð veitingamannsins gerðu mann reiðan og svekktan, eins og hann væri fórnarlambið í þessum aðstæðum,“ segir Silva. Hefði viljað sjá meiri auðmýkt Ásta tekur undir þessi orð og segir að hún hefði viljað sjá meiri auðmýkt í orðum Árna Bergþórs, sem sá um veitingarnar á þorrablótunum í Borg og Ölfusi, í viðtölum sem hann fór í í kjölfar veikindanna. „Dóttir mín var fyrst að veikjast strax um nóttina. Tengdadóttir mín og sonur minn fylgdu svo. Þegar þau þrjú voru öll orðin veik vissi ég að þetta hlyti að vera matareitrun. Það er munur á uppgangs- og niðurgangspest og þessu.“ Ásta og maðurinn hennar, Eddi, fyrir þorrablótið.Aðsend Sár og reið Ásta skrifaði langa færslu um málið á Facebook í dag þar sem hún segist ekki ætla að versla aftur við Veisluþjónustu Suðurlands. „Við værum örugglega ekki enn að tala um þetta nema því okkur sárnar hvernig veitingamaðurinn talar um þetta. Það er það sem stendur upp úr. Maður er sár og reiður því manni finnst hann mörgum sinnum í viðtölum við fjölmiðla vega að gestunum. Ef hann hefði sýnt auðmýkt og verið leiður þá væri enginn að tala um þetta,“ segir Ásta en í færslu sinni segir hún hann gaslýsa gesti og ófrægja þá í viðtölum. Hún á von á því að þetta hafi einhverjar afleiðingar fyrir veitingamanninn en eins og kom fram að ofan var hann ekki með leyfi og aðbúnaður ekki fullnægjandi. Aðrir gestir þorrablótanna taka undir orð Ástu í athugasemdum við færsluna hennar. „Ég tek það fram að ég þekki þennan mann ekki neitt en framkoma hans í þessu máli öllu er skólabókardæmi um hvernig á ekki að koma fram við fólk,“ segir Ásta að lokum í færslu sinni.
Þorrablót Þorramatur Ölfus Grímsnes- og Grafningshreppur Matur Heilbrigðiseftirlit Tengdar fréttir Sýkingin líklega af völdum bacillus cereus „Það er engin leið að segja nákvæmlega hvað fór úrskeiðis, hvernig þessi baktería komst inn í okkar vistkerfi og afhverju þetta smitaði svona marga.“ 11. febrúar 2025 06:59 Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Nokkur fjöldi fólks sem sótti þorrablót ungmennafélagsins Hvatar í Grímsnes- og Grafningshreppi á föstudag er orðinn veikur og hefur grunur vaknað um matarborna sýkingu. Birgir Leó Olgeirsson formaður þorrablótsnefndarinnar segir að upplýsingar um fjölda veikra liggi ekki fyrir. 2. febrúar 2025 18:10 Mest lesið Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Innlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Sjá meira
Sýkingin líklega af völdum bacillus cereus „Það er engin leið að segja nákvæmlega hvað fór úrskeiðis, hvernig þessi baktería komst inn í okkar vistkerfi og afhverju þetta smitaði svona marga.“ 11. febrúar 2025 06:59
Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Nokkur fjöldi fólks sem sótti þorrablót ungmennafélagsins Hvatar í Grímsnes- og Grafningshreppi á föstudag er orðinn veikur og hefur grunur vaknað um matarborna sýkingu. Birgir Leó Olgeirsson formaður þorrablótsnefndarinnar segir að upplýsingar um fjölda veikra liggi ekki fyrir. 2. febrúar 2025 18:10