Skoðun

Fyrir hvern vinnur þú?

Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar

Í þeirri kjarabaráttu sem KÍ á við sveitarfélög og ríki í dag og beinist að þvi að fá það opinbera til að uppfylla skilyrði samning virðast margir misskilja boðleiðir.

Málið er það að KÍ ber hag kennara, leikskólakennara, tónlistarskólakennara, grunnskólakennara, framhaldsskólakennar og stjórnenda í þessum skólum, fyrir brjósti og svarar fyrirspurnum frá kennurum varðandi þetta verkefni.

Sveitarstjórnir og alþingismenn eiga að bera hag íbúa fyrir brjósti og þeim ber að svara fyrirspurnum íbúa um framgang mála í sínu sveitarfélagi og kjördæmi. Þeir sem eru kosnir til að stjórna bera mikla ábyrgð. Þeir bera ábyrgð á framgangi alls konar mála innan samfélagsins og íbúar eiga að eiga greiðan aðgang að upplýsingum sem snerta íbúa – gegnsæi sem er vinsælt orð í stjórnmálum í dag. Í kjaradeilu KÍ og sveitarfélaga/ríkisins hefur einhver snúið þessu á hvolf.

Foreldrar sem eru uggandi yfir stöðu mála leita stöðugt til kennarasambandsins um hvað sé að gerast og hvort það sé rétt eða rangt. Þeir eiga að sjálfsögðu að herja á sina kjörnu fulltrúa og ráðnu bæjar/borgarstjóra um hvað sé í gangi. Það er ekki skylda KÍ að upplýsa foreldra um afstöðu hins opinbera í kjarabaráttunni. Það er skylda KÍ að upplýsa kennara um stöðu mála. Það er skylda hins opinbera að svara sínum íbúum. Íbúar landsins kusu ekki samninganefndir. Samninganefndir ríkis og sveitarfélaga eru millistig sem er tilkomið til að kjörnir fulltrúar geti afsalað sér ábyrgð sem er svo sannarlega þeirra. Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd ríkisins bera ekki ábyrgð á samkomulaginu frá 2016, það gera sveitarstjórnir og ríkisstjórnin.

Það er hreint ótrúlegt að tæplega 400 manns sem skipa sveitar, bæjar og borgarstjórnir yfir landið skuli vera sammála um að svíkja samning sem var gerður og fela sig á bak við fólk sem var ekki kosið til að vinna að hagsmunum íbúa. Það er eins og þjálfari sem segir að afgreiðslumaðurinn í sjoppunni beri ábyrgð á tapinu.

Sinnum okkar starfi.

Við gerum það.

Við biðjum ykkur, sveitarstjórnarmenn og ríkisstjórn að gera það líka.

Höfundur er kennari á Akureyri og í stjórn og samninganefnd FG.




Skoðun

Sjá meira


×