Erlent

Hamas og Ísrael komast að sam­komu­lagi um vopna­hlé

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eyðileggingin á Gasa er gífurleg eftir fimmtán mánaða átök. 
Eyðileggingin á Gasa er gífurleg eftir fimmtán mánaða átök.  Getty/Anadolu/Abed Rahim

Ísrael og Hamas hafa komist að samkomulagi um vopnahlé sem á að binda enda á 15 mánaða átök á Gasa. Samninganefndir hafa unnið að samkomulaginu í marga mánuði. Stjórnvöld í Ísrael eiga enn eftir að samþykkja tillöguna samkvæmt vef AP en á erlendum miðlum er haft eftir embættismönnum að búið sé að komast að samkomulagi. Þar segir jafnframt að fólk sé komið saman í Khan Younis til að fagna þessum tímamótum. 

Á ísraelska miðlinum Times of Israel segir að fyrstu gíslunum verði sleppt á sunnudaginn og að ríkisstjórn Ísrael muni hittast á morgun til að greiða atkvæði um tillöguna. 

Þrír fasar

Samkvæmt vef Reuters segir að í fyrsta fasa verði 33 gíslum sleppt. Í fyrsta fasa verði öllum konum, börnum og karlmönnum sem eru eldri en 50 ára sleppt úr haldi Hamas. 

Í öðrum fasa, sem eigi að hefjast á 16. degi vopnahlésis, verði öðrum gíslum sleppt og komið á varanlegu vopnahléi og herlið Ísraela yfirgefi Gasa. Í þriðja fasa á að skila líkum látinna gísla og hefja uppbyggingu á Gasa að nýju. 

Samkomulagið hefur ekki verið birt opinberlega en í frétt Reuters segir að það muni taka um sex vikur fyrir herlið Ísrael að koma sér út af Gasasvæðinu og öllum gíslum, á Gasa og í Ísrael, verði sleppt. 

Á vef BBC segir að forseti Ísrael, Isaac Herzog, hafi fundað með forseta Rauða krossins, til að undirbúa frelsun gíslanna.

Í tilkynningu frá skrifstofu hans hafi komið fram að á fundinum hafi Herzog ítrekað mikilvægi þessa verkefnis. Í tilkynningunni segir jafnframt að teymi Rauða krossins hafi greint forsetanum frá undirbúningi vegna flutnings gíslanna og þeim áskorunum sem þeir standa frammi fyrir.

Átökin hófust í október árið 2023 þegar Hamas réðst inn í Ísrael og drápu um 1.200 manns og tóku 250 gísla til Gasa. Samkvæmt samkomulaginu verður öllum gíslum sem enn eru í haldi á Gasa sleppt. Fram kemur á BBC að þeir séu alls 94 og 34 af þeim séu taldir látnir.

Trump búinn að staðfesta

Þar stendur jafnframt að Hamas-liði hafi staðfesti við BBC að Hamas hafi tilkynnt sáttamiðlurum frá Katar og Egyptalandi að þeir hafi samþykkt vopnahléstillöguna. Í frétt BBC segir að hann hafi staðfest þetta við BBC á sama tíma og fjallað var um það í ísraelskum miðlum að Hamas hafi gert kröfu um breytingar á tillögunni rétt áður en halda átti blaðamannafund um málið. Kröfur þeirra eiga að hafa tengst Philadelphi ganginum sem er landsvæði á Gasa við Egyptaland.

Ísraelar réðust í kjölfarið á árásinni í október 2023 inn á Gasa og hafa drepið um 46 þúsund manns síðan samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins sem stýrt er af Hamas-liðum.

Tilvonandi forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, birti fyrir stuttu tilkynningu á samfélagsmiðlinum sínum Truth social að samninganefndir hefðu komist að samkomulagi og að öll gíslunum yrði sleppt fljótlega.

Fréttin er í vinnslu og hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×