Innlent

Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum verður rætt við Einar Þorsteinsson borgarstjóra um fjölgun leikskólarýma í borginni. 

Borgin hefur þannig gengið til viðræðna við tvö fasteignafélög um að útvega húsnæði. Annarsvegar er um að ræða nýjan leikskóla í Elliðaárdal og hinsvegar er um að ræða stækkun á skóla Ármúla. 

Þá verður rætt við nokkra ráðherra í ríkisstjórninni að loknum ríkisstjórnarfundi sem fram fór í morgun og heyrum í fjármálaráðherra sem segir brýnt að áfengislöggjöfin verði skýrð, en áfengisverslunin Sante hefur nú opnað sýningarrými þar sem hægt  er að skoða vörurnar áður en þær eru keyptar í gegnum netið.

Einnig fjöllum við áfram um gróðureldana í Los Angeles og segjum frá nýju þjóðarátki sem Á allra vörum eru að hrinda af stokkunum. 

Í íþróttapakka dagsins eru það svo strákarnir okkar í handboltalandsliðinu sem sýndu ágætis takta í fyrri æfingaleik fyrir HM. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×