Enski boltinn

Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aðstoðardómari fylgist vel með leik Wimbledon og Shrewsbury Town í enska boltanum. Ungur kollegi hans fékk að finna vel fyrir því en fréttin tengist myndinni ekki beint.
Aðstoðardómari fylgist vel með leik Wimbledon og Shrewsbury Town í enska boltanum. Ungur kollegi hans fékk að finna vel fyrir því en fréttin tengist myndinni ekki beint. Getty/Matthew Ashton -

43 ára gamall fyrrum fótboltadómari þarf ekki að dúsa í fangelsi þrátt fyrir líkamsárás sína á táning sem var aðstoðardómari í leik hjá honum.

Robert Williams-Jones var þjálfari Amlwch Town FC liðsins þegar hann gekk upp að aðstoðardómaranum í miðjum leik og gaf honum einn á hann.

Liðið hans var að spila á móti erkifjendum í Norður Wales og tapaði leiknum á endanum 8-0.

Línuvörðurinn var leikmaður Penrhyndeudraeth FC sem var mótherji Amlwch Town liðsins í umræddum leik. Höggið var mikið og strákurinn steinlá.

Það voru aðeins fimmtán mínútur liðnar af leiknum þegar atvikið varð en þetta gerðist í apríl í fyrra.

Williams-Jones játaði sök og var dæmdur fyrir líkamsárás en myndband náðist af atvikinu sem auðveldaði lögreglunni rannsókn málsins.

Williams-Jones var dæmdur í 24 vikna skilorðsbundið fangelsi. Hann sleppur hins vegar við fangelsisvist hagi hann sér vel næstu tólf mánuði.

Williams-Jones þarf reyndar að skila 150 klukkutíma samfélagsþjónustu og borga þúsund pund í bætur sem gera um 173 þúsund krónur íslenskar.

Hér fyrir neðan má sjá atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×