Heilsa og vellíðan nátengd góðu umhverfi Ferðafélag Íslands og Páll Guðmundsson 4. janúar 2025 08:59 Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands segir áhrifin af góðri gönguferð margvísleg, bæði á líkama og sál. Um áramót er góður tími til að setja sér ný markmið, stíga á stokk og strengja heit, líkt og Jóhannes Jósefsson glímukappi gerði forðum daga. Þá er tilvalið að huga að heilsunni, reglubundinni hreyfingu og heilbrigðu líferni. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands skrifar um heilsu og útivist.
Rannsóknir sýna að hreyfing er ein af mikilvægum forsendum heilbrigðis. Hreyfing úti í náttúrunni hefur enn meiri og margvísleg jákvæð áhrif á líkama og sál. Það er mikilvægt fyrir hvern og einn að sporna við kyrrsetu og stunda útivist og líkamsrækt sem mest með einhverjum hætti. Gönguferðir úti í náttúrunni eru gefandi og skemmtilegar. Ganga er góð hreyfing og er í senn bæði einföld og ódýr. Auðvelt er að fara í daglegar gönguferðir út frá heimili eða vinnustað og víða má finna góða göngustíga í nærumhverfinu. Gönguferðir úti í náttúrunni og til fjalla eru gefandi og skemmtilegar og fjallgöngur eru meira krefjandi og auka þol og þrek göngufólks til muna. Það er frábær tilfinning að standa á fjallstindi eftir góða göngu. Finna fjallaloftið fylla lungun, njóta útsýnis, finna fyrir vellíðan og ekki síst njóta þessa alls í góðum félagsskap. Þannig eru áhrifin af góðri gönguferð margvísleg, bæði á líkama og sál. Mikilvægt er þó að muna eftir því að byrja ávallt hægt og rólega og byggja smám saman upp þrek og styrk. Vísindarannsóknir staðfesta að hreyfing hefur jákvæð áhrif á heilsu fólks. Þau sem hreyfa sig reglulega minnka meðal líkur á því að fá ýmsa sjúkdóma. Regluleg hreyfing eykur líkurnar á að fólk lifi lengur og við betri lífsgæði en annars. Góð heilsa íbúa er forsenda sjálfbærs velferðarkerfis. Stjórnvöld á Íslandi og þar með talin heilbrigðisyfirvöld hafa mikil ónýtt tækifæri í samstarfi við fjölmörg félagasamtök og grasrótina til að efla hreyfingu landsmanna og stuðla þannig að bættri heilsu landans. Ýmsa sjúkdóma má rekja til aukinnar kyrrsetu og ástæða til að hvetja ungt fólk til að hreyfa sig. Tækifæri til fjölbreyttrar útivistar og aðgengi að grænum svæðum eru þættir sem hafa áhrif á vellíðan fólks. Á fáum stöðum í heiminum er eins gott aðgengi að náttúrunni og á Íslandi. Víða í nærumhverfinu má finna græn útívistarvistarsvæði. Í Reykjavík má td nefna Heiðmörk, Úlfarsfell, Öskjuhlíð, Elliðaárdal og Esjuna og mikilvægt að standa vörð um þessi svæði og styrkja. Góð heilsa er eitt það mikilvægasta sem hver einstaklingur á. Því þurfum við að hugsa vel um okkur, hreyfa okkur reglulega, borða hollt og ástunda heilbrigðan lífsstíl. Fjölmörg ferða- og útivistarfélög bjóða upp á gönguhópa og reglubundna hreyfingu og útivist í góðum félagsskap. Nú um áramót er kjörið tækifæri að stíga á stokk og strengja þess heit að hreyfa sig sem mest úti í náttúrunni á nýju ári. Fjölmörg ferðafélög, útivistar- og gönguhópar bjóða upp á gönguhópa og reglubundna hreyfingu og útivist Höfundur er framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.
Fjallamennska Heilsa Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Lífið samstarf Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Fleiri fréttir Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira