Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. janúar 2025 17:50 Salah mun yfirgefa Liverpool í sumar. Copa/Getty Images Stjörnuframherjinn Mohamed Salah hefur gefið út að núverandi tímabil verði hans síðasta með enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool. Samningur hans við félagið rennur út í sumar og hann má nú þegar semja við lið utan Bretlandseyja.
Egyptinn staðfesti þetta í viðtali við Sky Sports í aðdraganda leiks liðsins gegn Manchester United um helgina. „Ég vil vinna ensku úrvalsdeildina með Liverpool. Þetta er mitt síðasta tímabil hjá félaginu og ég vil gera eitthvað sérstakt fyrir borgina,“ sagði Salah meðal annars í viðtalinu. Hann gaf þó á endanum til kynna að þetta væri staðan í dag en hlutirnir gætu þó breyst. Ljóst er að ef Salah stendur við yfirlýsinguna er um högg að ræða fyrir stuðningfólk Liverpool þar sem talið er næsta öruggt að Trent Alexander-Arnold muni ganga í raðir Real Madríd á frjálsri sölu í sumar þegar samningur hans við Liverpool rennur út. Hinn 32 ára gamli Salah er að eiga eitt sitt besta tímabil til þessa á ferlinum en hann hefur skorað 17 mörk og lagt upp 13 til viðbótar í aðeins 18 deildarleikjum á leiktíðinni. Þá hefur hann skorað tvö og lagt upp fjögur í Meistaradeild Evrópu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Sjá meira