Innlent

Jóla­gjafirnar í ár hittu beint í mark

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Margmenni var í Kringlunni í dag en margir nýttu daginn í að skila gjöfum sem ýmist pössuðu ekki eða hentuðu ekki af einhverjum ástæðum.
Margmenni var í Kringlunni í dag en margir nýttu daginn í að skila gjöfum sem ýmist pössuðu ekki eða hentuðu ekki af einhverjum ástæðum. Vísir/Vilhelm

Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark ef marka má gesti Kringlunnar sem fréttastofa náði tali af. Flestir sem voru mættir til að skipta gjöfum þurfu að skipta yfir í rétta stærð en aðrir skiptu bókum sem þeir fengu tvö, eða jafnvel þrjú eintök af. 

Í spilaranum má sjá viðtöl fréttastofu við gesti Kringlunnar. Einn var með glænýjan jakka í höndunum og önnur glænýja vetrarskó. Tvær ungar stúlkur sögðu þá að ferð til Kaupmannahafnar frá ömmu og afa hafi verið langbesta jólagjöfin.


Tengdar fréttir

Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu

Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna vill benda neytendum á að þeir eigi mun ríkari og rýmri skilarétt ef vörurnar sem þeir vilja skila hafa verið keyptar á netinu fremur en í hefðbundnum verslunum. Neytandi á að geta skilað vöru sem keypt er á netinu fjórtán dögum eftir að hann fær hana í hendur.

Airfryer ofn er jólagjöf ársins samkvæmt könnun ELKO

Airfryer hitablástursofn er jólagjöf ársins samkvæmt könnun sem ELKO gerði nú í aðdraganda undirbúnings jóla. Í öðru sæti er snjallsími og PS5 leikjatölvan í því þriðja. Þá sýnir það sig að upp til hópa gefur fólk margar gjafir. Tæpur helmingur segist gefa fleiri en 10 jólagjafir og tæpur þriðjungur gefur sjö til tíu gjafir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×