Neytendur

Sektuð fyrir að segjast vera best

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Neytendastofa sektaði Travelshift um sjö hundruð þúsund krónur.
Neytendastofa sektaði Travelshift um sjö hundruð þúsund krónur. Vísir/Hanna Andrésdóttir

Neytendastofa hefur sektað eigendur Guide to Europe um sjö hundruð þúsund krónur vegna ósannaðra og villandi fullyrðinga í markaðsefni. Stofnunin hefur einnig bannað Guide to Europe að birta slíkar fullyrðingar.

Neytendastofa tók ákvörðun gagnvart Travelshift vegna fullyrðinga í markaðsefni, upplýsinga í samningi um pakkaferðir og verðframsetningu á vefsíðu Guide to Europe. 

Samkvæmt úrskurði Neytendastofu hefur ferðaskrifstofan Guide to Europe, sem er í eigu Travelshift, ítrekað auglýst að þau bjóði upp á bestu ferðirnar, til dæmis bestu hótelin, flugin og skoðunarferðir. Matið að ferðirnar séu bestar byggir einungis á einkunnum annarra notenda en ekki hlutlægum samanburði. 

Fullyrðingar ferðaskrifstofunnar séu til dæmis „Bestu borgarferðir í Evrópu“ og „Allt sem þú þarft, á einum stað, fyrir draumaævintýrið í Evrópu (og lægstu verðin líka!). Sem stærsta ferðamarkaðstorg Evrópu, leitum við hjá yfir 2.000.000 ferðaþjónustuaðilum til að finna fyrir þig besta kostinn á besta verðinu - alltaf.“

Í svari Travelshift til Neytendastofu segir ferðaskrifstofan að félagið bjóði í raun upp á bestu ferðirnar miðað við einkunnir sem notendur gefa þjónustunum. Þá komi það fram í sammanburðarskýrslu þriðja aðila að í langflestum tilfellum bjóði Guide to Europe upp á ódýrasta kostinn.

Neytendastofa telur hins vegar að með því að birta fullyrðingar um mesta úrvalið og ódýrustu, lægstu og bestu verðin hafi félagið brotið lög. Ekki hafi verið til nægilegar sannanir fyrir því að Guide to Europe byði í raun upp á bestu ferðirnar og verðin. Það sé skylda auglýsenda að sanna fullyrðingar sem settar eru fram í markaðsefni.

Mismunandi þjónustustig í samanburðarkönnun

Samanburðarkönnun á verði fjögurra innlendra ferðaskrifstofa auk Guide to Europe hafi verið framkvæmd. Í sextíu af 74 pakkaferðum hafi Guide to Europe verið ódýrasti valkosturinn. Pakkaferðirnar sem bornar voru saman innihéldu allar sömu ferðtengdu þjónustuna, á sama svæði og á sömu dagsetningum. 

Hins vegar gat staðsetning gististaðanna, innifalin þjónusta og flugferðir í pakkaferðunum verið ólík milli ferðaskrifstofanna. Í þessari samanburðarkönnun var hægt að bera saman pakkaferðir sem buðu upp á beint flug við þær sem buðu upp á millilendingu. Neytendastofa setur athugasemdir við samanburð pakkaferða fyrst að þjónustustigið var ólíkt.

Villandi upplýsingar um verð

Á síðu Guide to Europe voru verð ferðalaga tilgreind ásamt fullyrðingunni „með hæstu einkunn í Evrópu.“ Hins vegar til að fá tilgreint verð þurfti að velja þjónustu, svo sem hótelgistingu, með mun lakari einkunn. Neytendastofa tók dæmi þar sem til að fá tilgreint verð þurfti að velja hótel  með 2,0 í umsagnareinkunn í staðinn fyrir annað hótel sem fékk 4,2. 

Neytendastofa segir Guide to Europe veita villandi upplýsingar um verð og hafi þetta áhrif á viðskiptaákvörðun neytenda ásamt því að raska fjárhagslegri hegðun neytenda. Travelshift brjóti því lög með verðframsetningunni.

Að auki gerði Neytendastofa athugasemd við að skilmálar Guide to Europe væru á ensku. Gerði ferðaskrifstofan breytingu á skilmálunum en telur Neytendastofa ýmis hugtök hafa brenglast í þýðingunni. Orðalagið sé þá óskýrt og sé ítrekað vísað í hliðarskilmála.

Skilmálarnir uppfylla því ekki skilyrðin að samningur um pakkaferð skuli vera skýr og á skiljanlegu og greinargóðu máli. Þetta raski verulega fjárhagslegri hegðun neytenda.

Banna fullyrðingarnar

Vegna þessara lögbrota bannar Neytendastofa Travelshift að birta fullyrðingarnar. Þá á félagið að laga skilmálana til að þeir séu í samræmi við lög. Brotið sé talið umfangsmikið og hafi það áhrif á breiðan hóp neytenda. 

Hér má lesa fullyrðingarnar sem birst höfðu í auglýsingum sem að Neytendastofa óskaði eftir sönnun fyrir:

1. „Bestu borgarferðir í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval borgarferða til Evrópu. Borgarferðir með hæstu einkunn í Evrópu.“ 

2. „Bestu sólarferðir í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval sólarferða til Evrópu. Sólarferðir með hæstu einkunn í Evrópu.“ 

3. „Bestu bílferðalög í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval bílferðalaga til Evrópu. Bílferðalög með hæstu einkunn í Evrópu.“ 

4. „Bestu skíðaferðir í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval skíðaferða til Evrópu Skíðaferðir með hæstu einkunn í Evrópu.“ 

5. „Bestu ódýru frí í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval ódýrra fría til Evrópu. Ódýr frí með hæstu einkunn í Evrópu“ 

6. „Bestu lúxusferðir í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval lúxusferða til Evrópu. Lúxusferðir með hæstu einkunn í Evrópu.“ 

7. „Bestu pakkaferðir í Evrópu. Skoðaðu heimsins mesta úrval pakkaferða til Evrópu. Pakkaferðir með hæstu einkunn í Evrópu“ 

8. „Bókaðu bestu flugin til Evrópu á stærsta ferðamarkaði Evrópu!“ 

9. „Finndu bestu hótelin og gististaðina á yfir 2000 áfangastöðum í Evrópu.“ 

10. „Finndu bestu skoðunarferðirnar á yfir 11.821 áfangastöðum í Evrópu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×