Einfaldar leiðir fyrir andlega vellíðan um hátíðirnar Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 18. desember 2024 20:02 Sara Snædís minnir á mikilvægi þess að staldra við í augnablikinu og anda djúpt. „Desember er svo fallegur mánuður en á sama tíma erum við oft á yfirsnúningi því það er margt sem þarf að huga að. Nú þegar jólin eru á næsta leiti er mikilvægt að gera hluti fyrir okkur sjálf, róa taugakerfið og leyfa okkur að njóta hátíðarinnar sem best,“ segir Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara.
Sara Snædís gefur lesendum Vísis nokkur góð og einföld ráð hvernig má minnka streitu og álag í aðdraganda jólanna. Hún segir mikilvægt að muna að draga andann djúpt og njóta þess að staldra við í augnablikinu. „Munum hvaða neikvæðu áhrif streita hefur á okkur bæði líkamlega og andlega og reynum okkar allra besta að koma í veg fyrir að hún nái of miklum tökum á okkur,“ segir Sara Snædís. Nokkur ráð sem hjálpa til við að róa taugakerfið Byrjaðu daginn rólega Stilltu vekjaraklukkuna 15 mínútum fyrr en vanalega og eigðu smá stund með sjálfum þér áður en allt fer á fullt á heimilinu. Kveiktu á kertaljósum, settu á rólega tónlist, helltu þér upp á te og njóttu þess að sitja í kyrrðinni. Gott er að skrifa niður nokkra hluti sem þú vilt ná úr deginum, hlusta á hugleiðslu eða bara sitja í ró og næði. Róandi kvöldrútína fyrir betri svefn Eftir langan dag getur það oft tekið tíma að ná sér niður eftir daginn. Það eru ýmsar leiðir sem hægt er að fara til þess að ná ró fyrir svefninn sem hjálpar við að tryggja betri svefn og róa kerfið niður. Fyrst og fremst er mikilvægt að takmarka skjánotkun fyrir svefninn og slökkva á öllum tækjum að minnsta kosti einni klukkustund áður en þú leggst upp í rúm. Þá er gott að drekka magnesíum eða fara í magnesíum bað. Góð húðrútína, þar sem t.d. gua sha er notað er frábær leið til að róa kerfið. Að taka mjúkar teygjuæfingar og öndunaræfingar er einnig góð leið til þess að slaka vel á kerfinu fyrir nóttina. Fáðu þér ferskt loft daglega Við skulum ekki vanmeta ferskt loft og göngutúra. Á Íslandi gleymum við oft að fara út að viðra okkur því veðrið er kannski ekki oft upp á marga fiska, engu að síður hvet ég þig til þess að fara út á hverjum degi sama hvernig viðrar. Andaðu að þér ferska loftinu, hreyfðu þig, þó það sé ekki nema í 10-15 mínútur. Það er svo mikil núllstilling og nærandi að fara út og fá sér ferskt loft - klæddu þig bara eftir veðri! Taktu djúpann andardrátt Öndunin okkar spilar risa stóran þátt í því að núllstilla kerfið okkar og hjálpar taugakerfinu að slaka á. Um leið og þér líður eins og það sé að myndast spenna eða streita í líkamanum staldraðu þá aðeins við og taktu djúpann andardrátt á meðan þú telur upp á fjóra. Haltu svo inn í þér andanum í aðra fjóra og andaðu svo út fjóra líka. Taktu þennan hring eins oft og þú þarft og finndu hvernig kerfið þakkar þér fyrir eftir á. Það jafnast ekkert á við töfralausnir eins og þessar þegar við þurfum nauðsynlega að núllstilla okkur og finna ró. Hreyfðu þig smá á hverjum degi Það er eflaust ekki efst á lista allra að ná inn æfingu á þessum tíma árs, þó svo að mörgum finnist það aleg ómissandi. Ef þér líður eins og það sé ekki tími fyrir æfingu mundu þá gullnu regluna um að öll hreyfing telur. Þó svo að þú náir ekki nema 10-15 mínútum á dag er það betra en engin hreyfing og nauðsynleg fyrir líkama og sál. Sara Snædís kenndi áður líkamsrækt á Íslandi en býr nú í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni.With Sara Settu þér markmið að hreyfa þig fimm sinnum í viku í 10 til 15 mínútur, eða lengur ef tími gefst. Það að stífna upp í líkamanum, fá vöðvabólgu og höfuðverk vegna hreyfingaleysis og álags er ekki þess virði og við skulum gera okkar besta til þess að sporna við því. Hugmyndir af æfingum þegar líkaminn upplifir mikla streitu og álag Barnið: Sestu á hælana og leyfðu stóru tánnum að snertast. Hnéin opnast út til hliðar og svo leggur efri líkamann fram eins og langt og þú kemst. Hendurnar teygjast fram og þú tekur 8-10 djúpa andardrætti hér Mjaðmaopnun: Þú byrjar á fjórum fótum og gengur svo hægri fætinum á milli handa. Þaðan sendir þú mjaðmir fram til að opna mjaðmasvæðið en passar að hnéið fari ekki fram fyrir tær. Ef það gerist þarftu að færa fótinn enn framar. Hendur eru annað hvort í gólfi, ofaná lærinu eða teygir þær upp í loft. Heldur hægri hliðinni 8-10 andardrætti og skiptir svo um hlið. Hliðarteygja: Annað hvort sitjandi eða standandi staða þar sem þú teygir báðar hendur upp í loft. Grípur hægri hendinni utan um vinstri hönd og togar hana upp í loft og svo hallar þú þér yfir til hægri. Hér ættir þú að finna góða teygju á síðunni og upp bakið. Halda 4-6 andardrætti og gera svo hinu megin. Frambeygja: Finna standandi stöðu og rúlla bakinu niður þar sem höfuðið leiðir alveg þar til þú kemst ekki lengra. Leyfir þér að hanga þar niðri, grípur um olnboga og ruggar þér frá hægri til vinstri. Hér má alveg beygja hnéin ef það þarf og muna eftir að anda. Halda í 4-6 andadrætti og rúlla svo rólega upp aftur. Gott að endurtaka 4-5 sinnum. Teygjutími sem virkar Gefðu þér tólf mínútur til þess að gera slakandi æfingar sem róa taugakerfið og losa um streitu.
Heilsa Jól Geðheilbrigði Mest lesið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Lífið Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Lífið Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna Lífið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Lífið „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Lífið Fleiri fréttir Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Kemur út sem pankynhneigð Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Einfaldar leiðir til að róa taugakerfið Nýju fötin forsetans Erla og Ólafur selja glæsilegt einbýli í Vesturbænum Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Sjá meira