Ásdís Eir, Aðalheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju Atli Ísleifsson skrifar 12. desember 2024 08:59 Lykilstjórnendur Lyfju og framkvæmdastjóri. F.h. Þórbergur Egilsson, Arnheiður Leifsdóttir, Ásdís Eir Símonardóttir, Þorvaldur Einarsson, Karen Ósk Gylfadóttir, Ólöf Helga Gunnarsdóttir. Íris Dögg Ásdís Eir Símonardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Lyfju og kemur ný inn í hóp lykilstjórnenda félagsins ásamt Aðalheiði Leifsdóttur og Ólöfu Helgu Gunnarsdóttur sem eru nýir forstöðumenn á sínum sviðum.
Frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu. „Ásdís Eir er með MS próf í félags- og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands og BS próf í sálfræði. Hún hefur síðastliðið ár starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og unnið að mannauðsverkefnum með fyrirtækjum á borð við Nova, Ljósleiðarann, Veitur, Stafræna Ísland og þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar. Arnheiður Leifsdóttir stundaði nám í alþjóðamarkaðsfræði við HR og hefur starfað hjá Lyfju frá árinu 2020, síðast sem markaðsstjóri en gegnir núna starfi forstöðumanns markaðs- og vefmála. Áður starfaði hún sem forstöðumaður markaðsmála hjá TM, eða frá 2007 til 2018. Ólöf Helga Gunnarsdóttir er forstöðumaður vörusviðs og greininga Lyfju. Hún með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hóf störf á vörusviði Lyfju haustið 2022. Þar áður starfaði hún í vörustýringu hjá 66°Norður á árunum 2015 til 2022,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að Ásdís Eir hafi fjölþætta faglega reynslu eftir að hafa bæði starfað innan fyrirtækja og verið formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi, á árunum 2020 til 2023. Hún var mannauðsstjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Lucinity 2021 til 2023 og í mannauðsteymi Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2016 til 2021. Ný framkvæmdastjórn Auk Ásdísar, Arnheiðar og Ólafar eru Þórbergur Egilsson og Þorvaldur Einarsson hluti af hópi forstöðumanna Lyfju undir forystu Karenar Óskar Gylfadóttur framkvæmdastjóra. „Þórbergur leiðir verslanasvið Lyfju og hefur starfað hjá félaginu frá 1996 sem stjórnandi og lyfsali í ýmsum apótekum. Þórbergur hefur lokið M.Sc. í lyfjafræði frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þorvaldur hefur leitt tækni- og þróun félagsins frá 2022. Hann starfaði áður sem viðskiptaþróunarstjóri App Dynamic og forstöðumaður hugbúnaðarlausna hjá Origo. Þorvaldur er með B.Sc. í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og er að auki með M.Sc. próf í rafmagnsverkfræði frá University of Maryland,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Lyf Mest lesið Opinberir starfsmenn séu með nítján prósent betri kjör Viðskipti innlent Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Atvinnulíf Ásdís Eir, Arnheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju Viðskipti innlent Hefur styrkt KR um 300 milljónir Viðskipti innlent Wok to Walk opnar á Smáratorgi Viðskipti innlent Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Viðskipti erlent Tilnefningar til bestu íslensku vörumerkjanna Viðskipti innlent Kaup Símans á Noona gengin í gegn Viðskipti innlent Verð á kaffi sögulega hátt Viðskipti erlent Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ásdís Eir, Arnheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju Tilnefningar til bestu íslensku vörumerkjanna Opinberir starfsmenn séu með nítján prósent betri kjör Hefur styrkt KR um 300 milljónir Kaup Símans á Noona gengin í gegn Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir KEA hefur innreið á íbúðaleigumarkað á Akureyri Hætta við skerðingar norðan- og austantil Bein útsending: Sameiginleg fjárfestakynning Marel og JBT Stefnu Samskipa gegn Eimskipi vísað frá dómi Wok to Walk opnar á Smáratorgi Krafa upp á 650 milljónir varði ekki verulega hagsmuni Samskip fá áheyrn Hæstaréttar í samkeppnismálinu Margrét tekur við nýju hlutverki hjá Advania Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Fjölmiðlar á landsbyggðinni fá rúma milljón hver Kapp kaupir bandarískt félag Sesselja nýr forstjóri Genis Álfrún leiðir almannatengslin hjá Íslandsstofu Spá óbreyttri verðbólgu næstu tvo mánuði Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Aðstoðarmaður Katrínar til Aton Lánakvótar svarið við háum vöxtum húsnæðislána Spánverjar sólgnir í íslenskar gellur Brotajárnsfyrirtæki metið á milljarða í kaupum Styrkáss Sækja reynslubolta í viðskiptagreind til Cubus Metsætanýting í nóvember hjá Icelandair Raforka hækkað um 13,2 prósent á árinu Forstjóri Dominos til N1 Verðhækkunin nemi ekki því sem Nói Síríus fái á sig Sjá meira