Viðskipti innlent

Metsætanýting í nóvember hjá Icelandair

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, við móttöku nýju Airbus þotunnar í Hamburg í vikunni. 
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, við móttöku nýju Airbus þotunnar í Hamburg í vikunni.  Vísir/Egill

Icelandair flutti yfir 300 þúsund farþega í nóvember. Það eru 6,4 prósentum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 34 prósent farþega á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi, 41 prósent ferðuðust um Ísland og sex prósent innan Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Þar segir að aukin sætanýting í mánuðinum sé sambland af mikilli eftirspurn í ár og veikari eftirspurn í nóvember í fyrra sem skýrðist af áhrifum jarðhræringanna á Reykjanesi.

Þá segir að mikil eftirspurn hafi einnig verið eftir innanlandsflugi en vegna veðurs hafi ferðum fækkað í nóvember um fimmtán prósent. Það hafi haft áhrif á farþegafjölda í mánuðinum.

Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 15 prósent samanborið við nóvember í fyrra vegna fleiri ferða á MAX vélum og góðrar sætanýtingar.

„Það er ánægjulegt að sjá hlutfall farþega til Íslands halda áfram að aukast. Auk þess var mikill kraftur í ferðalögum Íslendinga út fyrir landsteinana en 8% aukning var á markaðnum frá Íslandi á milli ára. Stundvísi og sætanýting er áfram mjög góð, sem staðfestir styrk og áreiðanleika leiðakerfisins. Leiguflugsstarfsemin okkar er mikilvæg til þess að auka nýtingu flugvéla yfir vetrartímann og það var ánægjulegt að sjá umtalsverða aukningu í þeim hluta rekstrarins á milli ára,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.

Fjölgun farþega á árinu

Þar kemur einnig fram að það sem af er ári hafi Icelandair flutt 4,3 milljónir farþega, sem sé átta prósentum fleiri en á sama tíma á síðasta ári.

Stundvísi í leiðakerfinu var 84,7 prósent og metsætanýting var í nóvember eða 82,4 prósent. Hún jókst um sjö prósentustig á milli ára.

„Fyrr í vikunni tókum við á móti fyrstu Airbus flugvélinni í sögu Icelandair. Um er að ræða mikil tímamót og við erum spennt fyrir því að hefja áætlunarflug á þessari glænýju og hagkvæmu vél í næstu viku,“ segir Bogi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×