Enski boltinn

Arsenal gæti sótt manninn sem hætti fljótt hjá Man. Utd

Sindri Sverrisson skrifar
Dan Ashworth staldraði heldur stutt við hjá Manchester United, eða í aðeins fimm mánuði.
Dan Ashworth staldraði heldur stutt við hjá Manchester United, eða í aðeins fimm mánuði. Getty/Charlotte Tattersall

Arsenal hefur bætt Dan Ashworth á lista yfir þá sem mögulega gætu tekið starfi yfirmanns íþróttamála hjá félaginu, eftir að hann yfirgaf skyndilega Manchester United.

United keypti Ashworth frá Newcastle en hann var aðeins fimm mánuði við störf hjá Rauðu djöflunum áður en ákvörðun var tekin um helgina um að hann myndi hætta. 

The Athletic segir að United hafi átt frumkvæðið að þeirri ákvörðun, eftir ítrekað ósætti á milli Ashworth og annarra stjórnenda hjá félaginu.

Þó að þessi skammi tími hjá United, þar sem Ashworth hafði leikmannakaup- og sölur á sinni könnu, hafi sjálfsagt skaðað orðspor hans þá hefur ESPN heimildir fyrir því að Ashworth sé samt sem áður í sigti Arsenal, ásamt fleirum.

Ashworth skapaði sér nafn eftir að hafa þótt gera vel hjá enska knattspyrnusambandinu, Brighton og Newcastle, og þar áður starfaði Ashworth með Richard Garlick hjá West Bromwich Albion. Garlick færði sig til innan Arsenal í sumar og tók við stöðu framkvæmdastjóra, og stýrir því leitinni að arftaka Edu sem hætti sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal í síðasta mánuði.

Edu hætti óvænt til þess að taka við starfi fyrir Grikkjann Evangelos Marinakis, sem á nokkur knattspyrnufélög og þar á meðal Nottingham Forest. 

Arsenal hafði því ekki gert áætlanir varðandi mögulegan arftaka Edu og eru verkefni hans nú í höndum Garlicks og Jason Ayto, aðstoðarstjórnanda. Samkvæmt frétt ESPN sjá forráðamenn Arsenal ekki mikla ástæðu til leikmannakaupa í janúarglugganum og því er ekki talið liggja mikið á að ráða arftaka Edu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×