Íslenski boltinn

Þungavigtarbikarinn hefst í janúar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Afturelding verður á ferðinni í Þungavigtarbikarnum.
Afturelding verður á ferðinni í Þungavigtarbikarnum. Vísir/Anton Brink

Er jólunum lýkur styttist snarlega í Íslandsmótið í fótbolta og upphitun hefst fyrir það strax í janúar.

Þungavigtarbikarinn verður aftur á ferðinni í ár og þar munu sex lið úr Bestu deildinni taka þátt. Þetta er þriðja árið í röð sem mótið fer fram en FH hefur unnið í bæði skiptin.

Leikið er í tveimur þriggja liða riðlum. Fyrsti leikur mótsins er leikur nýliða Aftureldingar og Íslandsmeistara Breiðabliks.

A-riðill

Afturelding

Breiðablik

ÍA

Leikirnir:

10. janúar: Afturelding - Breiðablik kl 18.00 á Malbiksstöðinni Varmá.

18. janúar: Breiðablik ÍA kl 13.00 á Kópavogsvelli

25. janúar: ÍA - Afturelding kl 11.30 í Akraneshöllinni

B-riðill

FH

Stjarnan

Vestri

Leikirnir:

11. janúar: FH - Vestri kl 12.00 í Skessunni

18. janúar: Stjarnan Vestri kl 13.00 á Samsung vellinum

25. janúar: FH - Stjarnan kl 12.00 í Skessunni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×