Lífið

Lára og lyfjaprinsinn opin­bera kynið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lára og Jens eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Lára og Jens eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Samfélagsmiðlastjarnan Lára Clausen og kærasti hennar Jens Hilmar Wessman eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið tilkynnti á samfélgsmiðlum í gær að von væri á stúlku.

Parið hélt kynjaveislu fyrir fjölskyldu og vini þar sem þau greindu frá kyni ófædds barns síns.

„Lítil stelpa væntanleg í maí,“ skrifar Jens við færsluna. 

Parið hefur verið saman undanfarna hálfa árið og hafa haft nóg fyrir stafni. Í sumar voru þau meðal annars reglulega í útlöndum þar sem þau ferðuðust meðal annars um í einkaþotu á milli Frakklands og Grikklands.

Lára hefur um nokkurra ára skeið verið ein þekktasta samfélagsmiðlastjarna landsins. Jens Hilmar er elsti sonur Róberts Wessman, forstjóra lyfjafyrirtækisins Alvotech og eins ríkasta manns landsins. Parið opinberaði samband sitt sumar og þau hafa aldrei verið betri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.