Sviptum greiðslumiðlun RAPYD starfsleyfi Ástþór Magnússon skrifar 9. október 2024 09:31 Þegar ég stofnaði fyrsta kreditkortafyrirtækið á Íslandi sem ungur maður, óraði mig aldrei fyrir að greiðslumiðlunin sem ég setti á fót myndi áratugum síðar tengjast ofbeldi og hryðjuverkum í mið austurlöndum. Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga um að setja viðskiptabann á Ísrael. Flutningsmaður tillögunnar talar um að viðskipti Íslands og Ísraels séu óveruleg en hefur líklegast yfirsést að frá Íslandi er rekið alþjóðlegt fjármálafyrirtæki í eigu herskárra Ísraelsmanna með nær 26 milljarðar tekjum. Fjártæknifyrirtækið Rapyd notar hið góða nafn Íslands á erlendum vettvangi til að greiða fyrir og auka viðskiptaveldi sitt. Eigendurnir hafa látið ljósmynda sig í svuntum merktum RAPYD með hríðskotariffla og lýst yfir stuðningi á opinberum vettvangi við þjóðarmorðið á Gaza. Myndirnar má sjá hér: https://austurvollur.is/blog/rapyd/ Hryðjuverkastjórnin í Ísrael Ísrael voru fyrstir til að beita hryðjuverkum þegar þeir byrjuðu með ofbeldi að knýja á um stofnun Ísraels ríkis í Palestínu á síðustu öld. Ísrael braut síðan aftur blað í síðasta mánuði þegar þeir notuðu sprengjur í fjarskiptatækjum og limlestu og drápu þúsundir manns í Lebanon. Sérfræðingar telja hættu á því að þessi hryðjuverka aðferð verði einnig tekin upp af öðrum. Landrán með morðum og ofbeldi Ríkisstjórn Ísrael og hersveitir þeirra hafa í áratugi veitt landtökumönnum stuðning við að sölsa undir sig land og heimili palestínumanna með vopnum og ofbeldi. Þetta hefur verið gert með svo afdrífaríkum hætti að svokölluð tveggja ríkja lausn er er ekki lengur raunhæfur möguleiki eftir að ólögmætar landnemabyggðir hafa sprottið upp eins og gorkúlur um alla Palestínu síðustu áratugi. Sérfræðingar eru á því að ef reynt verður að fá landnemana, sem flestir eru vopnaðir, til að yfirgefa landnemabyggðirnar muni það leiða til borgarastyrjaldar í Ísrael. Tveggja ríkja lausn þarf að hugsa uppá nýtt Það þarf að hugsa tveggja ríkja lausn upp á nýtt, t.d. út frá átakinu www.alandforall.org þar sem íbúar Ísrael og Palestínu verða með sitthvort ríkisfangið en búseturétt allstaðar í báðum löndunum. Ekki ósvipað og Evrópusambandið er í dag. Búið að drepa tugi þúsunda á einu ári Á Gaza er búið að drepa nær 42,000 manns, nær 17 þúsund börn. Slasaðir eru nær 100 þúsund og talið er að 10,000 manns séu grafin undir rústum bygginga. Með sprengjuárásum Ísrael er búið að eyðileggja meira en helmingin af heimilum á Gaza, 80% af atvinnuhúsnæði, 87% af skólum, 17 af 36 sjúkrahúsum eru aðeins að hluta til starfandi, 68% af vegakerfi er ónýtt og 68% af ræktunarlandi. Gaza hefur verið gert nánast óbyggilegt. Aðgerðir Ísraels hafa lítið með sjálfsvörn að gera. Það er hverjum manni ljóst sem kynnir sér hvað er í gangi þarna með óhlutdrægum hætti að aðgerðir Ísraelsstjórnar snúast um að sölsa undir sig alla Palestínu og útrýma palestínsku þjóðinni eða reka hana á flótta úr heimalandi sínu. Þetta má lesa úr yfirlýsingum ráðamanna í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum. Enn frekar undirstrikað með landakorti sem Netanyahu forsætisráðherra Ísrael kynnti sem hið nýja Ísrael fyrr á þessu ári á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Leiðtogar Ísrael fyrir stríðsglæpadómstólinn Saksóknari Stríðsglæpadómstólsins í Haag hefur óskað eftir handtökuskipun á hendur forráðamönnum Ísraels fyrir stríðsglæpi. Í raun erum við að sjá spegilmynd af ofsóknum Hitlers gegn gyðingum á síðustu öld, nú ber skrímslið sem við erum að fást við nafnið Netanyahu. Hernaður Ísraela kyndir undir gyðingahatur Málsmetandi gyðingar um allan heim horfa með hryllingi uppá hvað er að gerast. Ekki aðeins er verið að útrýma palestínsku þjóðinni í beinum útsendingum sem við horfum upp á hverjum degi, aðgerðir Ísraels eru einnig að grafa undan öryggi Ísraels til frambúðar og auka verulega hættu á því að allsherjarstyrjöld brjótist út í mið austurlöndum sem gæti ógnað allri heimsbyggðinni bæði efnahagslega og hernaðarlega. Aðgerðirnar eru einnig að auka andúð á gyðingum um allan heim. Þeir sem eru gyðingum verstir í dag er ríkisstjórn Ísrael og þeirra hryðjuverkastarfsemi. Þaggað niður í friðarumleitunum með morðum Hamas og Hizbolla samtökin hafa bæði lýst því yfir að um leið og Ísrael hætti árásum á Gaza og láti af hernaði gegn nágrönnum sínum, muni þeir leggja niður vopn. Ríkisstjórn Ísraels hefur hafnað öllum slíkum tillögum um vopnahlé og frið og í raun gert út á að myrða þá leiðtoga sem hafa talað fyrir friði. Friður mun ekki komast á með slíku ofbeldi í mið austurlöndum. Nauðsynlegt að einangra Ísrael með viðskiptabanni Öflugustu aðgerðir til að knýja á Ísrael að láta af þessu hátterni og leita friðsamlegra lausna með nágrönnum sínum er að fjarlæg lönd eins og Ísland einangri Ísrael á alþjóðavettvangi. Stuðli að því að lokað verði fyrir öll viðskipti við Ísrael. Lög gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Á Íslandi eru lög gegn peningaþvætti. Ísland hefur einnig bannað peningasendingar t.d. til Rússlands vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Íslensk stjórnvöld hljóta einnig að stöðva fjármagnssendingar til aðila í mið-austurlöndum sem styðja hryðjuverk og þjóðarmorð. Starfsemi Rapyd er milljarða króna alþjóðleg fjármálaþjónusta. Þar eru hæg heimatök að stunda peningaþvætti til að styðja hryðjuverkastarfsemi og þjóðernishreinsanir í Palestínu og nærliggjandi löndum. Ísland þarf að taka fyrir þetta, t.d. með því að svifta Rapyd starfsleyfi. Höfnum ofbeldi Ísland á ótvírætt að setja viðskiptabann á Ísrael og beita sér fyrir því að önnur ríki geri það einnig. Þá er rétt að stöðva starfsemi alþjóðlegs fjármálafyrirtækis, Rapyd, sem hugsanlega notar fjármálakerfi landsins til að kynda undir ofbeldi í ólögmætum landnemabyggðum. Höfundur var stofnandi Kreditkort hf og síðar Friðar 2000. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ástþór Magnússon Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar