Skoðun

ADHD og Sköpunar­gáfa: Leyndar­mál Skapandi Fram­fara:

Steindór Þórarinsson skrifar

Eftir að hafa lært um mitt ADHD og farið í gegnum tveggja ára sjálfsrannsókn, lestri og endurmati á mínu eigin lífi eftir mörguar áskoranir en líka sigrana, hef ég orðið var við tilhneigingu til að einblína á erfiðleikana sem fylgja ADHD. En það eru líka óneitanlega kostir sem fylgja þessari röskun, sérstaklega þegar kemur að sköpunarkrafti. Í þessari grein vil ég skoða hvernig ADHD og sköpunargáfa geta tengst og mögulega leiða til skapandi framfara.

Sem einhver sem hefur starfað mikið með tónlistarfólki, sem matreiðslumaður og grafískur hönnuður, hef ég upplifað frá fyrstu hendi hvernig þessi eiginleiki hefur ómeðvitað hjálpað mér. Nú er ég í stakk búinn til að beisla þessa orku og sköpunarkraft til góðra verka.

Svona þar sem mikið af fréttum og umræðu í samfélaginu er gríðarlega neikveitt alltaf, að þá langar mig að koma með eitthvað jákvætt inni í samtalið.

„Creative powers are like a burst water pipe, they flow with a force that refuses to be confined,” Maya Angelou

Óhefðbundin hugsun: Blessun í dulargervi

Fólk með ADHD býr oft yfir sérstökum hæfileikum til að tengja hugmyndir á óvenjulegar og nýstárlegar leiðir. Þessi hæfileiki getur verið kraftmikill í listum, tónlist, ritstörfum og öðrum skapandi greinum einnig hjálpar þetta frumkvöðlum að finna lausnir og hugsa útfyrir kassann, þar sem óhefðbundnar nálganir og nýjar hugmyndir eru eftirsóknarverðar. Þekkt dæmi um skapandi einstaklinga með ADHD eru m.a. Billie Eilish, Emma Watson, Justin Timberlake og Dave Grhol, sem öll hafa talað opinskátt um sitt ADHD og hvernig þau nýta sér þennan eiginleika í sínu starfi.

Hvernig ADHD styður við sköpunargáfu

Sköpunarkraftur krefst frelsis til að leika sér með hugmyndir sem er eitthvað sem fólk með ADHD gerir náttúrulega. Tenging hugmynda á frjálslegan hátt, sem er einkennandi fyrir ADHD, gerir það að verkum að einstaklingar geta oft komið fram með nýjar og óvenjulegar lausnir á flóknum vandamálum. Þessi eiginleiki getur verið gríðarlega gagnlegur í skapandi ferlum, þar sem hröð framleiðsla og snögg þróun hugmynda geta skipt sköpum.

„Fólk með ADHD býr yfir sérstökum sköpunargáfum vegna þess hvernig þeirra hugur hoppar frá einu til annars. Þar liggja falin tækifæri til að sjá heiminn öðruvísi," ADHD Pabbi

Skapandi aðferðir: Nýta styrkleika ADHD

Fjölmargir aðferðafræðingar og sérfræðingar hafa þróað aðferðir til að hjálpa einstaklingum með ADHD að beisla sinn sköpunarkraft. Megináherslan er á að þróa meðvitund um eigin hugsunarhátt og aðferðir, stýra orku á uppbyggilegan hátt og finna leiðir til að viðhalda sköpunargleði. Til dæmis, með því að beita skapandi markþjálfun er hægt að hjálpa skjólstæðingum að læra að nýta orku sína og skapandi hæfileika á árangursríkan hátt.

„Discovery consists of seeing what everybody has seen and thinking what nobody has thought, " Albert Szent-Györgyi

Dæmi um Sköpunarkraft með ADHD

Skapandi einstaklingar með ADHD eru oft í fararbroddi nýsköpunar. Skáldið og leikarinn Howie Mandel, sem hefur ADHD, hefur nýtt sér sína einstöku hæfileika til að skapa einstakar og eftirminnilegar framkomur á sviði og í sjónvarpi. Hans geta til að flæða á milli hugmynda og aðlaga sig hratt að nýjum aðstæðum hefur hjálpað honum að vera framarlega í skemmtanaiðnaðinum.

„The true sign of intelligence is not knowledge but imagination," Albert Einstein. ADHD

Þarf ekki að vera fylgifiskur sem heftir það getur verið kraftmikill drifkraftur sköpunar og nýsköpunar. Með réttri þekkingu og stuðningi geta einstaklingar með ADHD nýtt sér þessa eiginleika til að ná frábærum árangri í listum, tónlist og öðrum skapandi sviðum.

Höfundur er markaðsráðgjafi & ICF viðurkenndur markþjálfi




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×