Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Lovísa Arnardóttir skrifar 26. maí 2024 10:15 Venjulega fara stórir vöruflutningar í gegnum Kerem Shalom. Egyptar hafa samþykkt að hleypa vöruflutningabílum með hjálpargögn þar í gegn á meðan ekki er hægt að fara í gegnum Rafah landamærin. Vísir/Getty Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum.
Nærri ómögulegt hefur verið að koma hjálpargögnum inn á Gasasvæðið eftir að Ísraelar hófu árás á Rafah í upphafi mánaðar. Ísralar tóku yfir aðra hlið landamæranna í þessum mánuði. Egyptar hafa neitað að opna sína hlið Rafah landamæranna þar til hin hliðin er aftur í höndum Palestínumanna. Þeir samþykktu að beina umferðinni í aðra átt og í gegnum Kerem Shalom landamærin en allir stórir vöruflutningar fara yfirleitt þar í gegn. Á vef AP segir að Egyptar hafi samþykkt þessa breytingu eftir samtal á milli forseta Bandaríkjanna, Joe Biden og forseta Egyptalands Abdel-Fattah el-Sissi. كاميرا القاهرة الإخبارية ترصد بدء دخول المساعدات إلى معبر كرم أبو سالم في طريقها إلى قطاع غزة#تضامنا_مع_فلسطين #محمد_عبيد #من_غزة_هنا_القاهرة#القاهرة_الإخبارية pic.twitter.com/EIz0ksumxX— القاهرة الإخبارية - AlQahera News (@Alqaheranewstv) May 26, 2024 Landamærastöðin við Kerem Shalom hefur að mestu verið óaðgengileg vegna mikilla bardaga. Ísraelar segjast hafa hleypt hundruðum vöruflutningabíla í gegn síðustu vikur en hjálparsamtök segja það yfirleitt of hættulegt að nálgast þá hinum megin. Ekki víst að hægt verði að nálgast gögnin Í frétt AP segir að egypska ríkissjónvarpið hafi í morgun birt myndefni af vöruflutningabílunum þegar þeim var ekið inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom. Það má sjá að ofan. Yfirmaður Rauða krossins í Egyptalandi, Khaled Zayed, sagði við blaðamann AP að 200 vöruflutningabílum og fjórum olíubílum ættu að fara í gegnum landamærin í dag. Stríðið á milli Ísrael og Hamas er nú á sínum áttunda mánuði en það hófst eftir að Hamas-liðar réðust inn í Ísrael og drápu um 1.200 almenna borgara og tóku 250 gísla. Enn eru um 100 gíslar í haldi Hamas. Í átökunum hafa 35.800 Palestínumenn látið lífið samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti PAlesínu. Ráðuneytinu er stýrt af Hamas og er ekki gerður greinarmunur á almennum borgurum og hermönnum þeirra í þessum tölum. Á myndinni eru vöruflutningabílar á bið við Kerem Shalom landamærin. Myndin er tekin í apríl en erfitt hefur verið að koma hjálpargögnun inn á Gasa á meðan átökunum stendur. Vísir/EPA Um 80 prósent þjóðarinnar, eða 2,3 milljónir, hafa flúið heimili sín og hafa ekki aðgengi að mat. Hjálparsamtök hafa sagt hungursneyð yfirvofandi. Suðurhluti Gasasvæðisins hefur að mestu verið án hjálpargagna undanfarið eða allt frá því að Ísraelar hófu innrás sína á Rafah í upphafi maímánaðar. Frá þeim tíma hefur um ein milljón manns flúið borgina en þau höfðu áður flúið þangað. Hungursneyð í gangi eða yfirvofandi Norðurhluti Gasa hefur verið einangraður í marga mánuði og hefur Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, World Food Programme, varað við því að þar geysi hungursneyð. Hjálpargögn hafa borist þangað í gegnum tvær leiðir á landi sem Ísraelar opnuðu í apríl. Fjölmenn mótmæli voru í Tel Aviv í gær. Sjö voru handtekin. Vísir/AP Þá hefur einnig verið mögulegt að senda hjálpargögn í gegnum færanlega byggju sem Bandaríkjamenn byggðu við strendur Gasa. Verði að ná Rafah til að sigra Forsætisráðherra Ísrael Benjamin Netanyahu hefur lýst því yfir að til að ná Rafah til að ná að sigra Hamas algerlega. Það verði ekki sigur fyrr en því er lokið. Töluverður þrýstingur er á hann bæði alþjoðlega og innanlands að láta af innrásinni. Alþjóðadómstólinn úrskurðaði á föstudag að herinn ætti að láta af árás sinni á Rafah en Ísrael hefur ekki enn orðið við því. Í úrskurði dómstólsins kom einnig fram að Ísraelar ættu að hleypa inn á Gasa rannsakendum á þeirra vegum sem rannsaka staðhæfingar um þjóðarmorð. Mótmælendur í Tel Aviv héldu myndum af gíslum og mótmæltu ríkisstjórn Netanyahu.Vísir/AP Í Ísrael hefur aðgerðunum sömuleiðis verði mótmælt harðlega. Átök voru í nótt í Tel Aviv á milli mótmælenda og lögreglunnar. Hávær krafa er um að yfirvöld komist að samkomulagi við Hamas um þá gísla sem enn eru í þeirra haldi. Þá var einnig krafa um að átökunum myndi linna og að Netanyahu segi af sér og kalli til kosninga. Sjö voru handtekin á mótmælunum í gær samkvæmt frétt Guardian og einn slasaður.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Egyptaland Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Halda áfram árásum á Rafah Í það minnsta þrjátíu manns hafa látið lífið í árásum Ísraelsmanna á Gasasvæðinu síðan alþjóðadómstóllinn í Haag skipaði Ísrael að stöðva innrás sína á Rafah á sunnanverðri Gasaströndinni. 25. maí 2024 14:59 Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins. 24. maí 2024 14:42 „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Nemendur í háskólum Hollands hafa undanfarna daga reist tjaldbúðir á skólalóðum til stuðnings Palestínu, og margir mætt mikilli hörku lögreglu. Íslenskur nemandi lýsir mikilli samstöðu meðal stúdenta sem fara fram á að hollenskir háskólar taki skýrari afstöðu gegn ísraelskum stjórnvöldum og slíti tengslum við ísraelska háskóla og fyrirtæki. 24. maí 2024 10:58 Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Þrátt fyrir umfangsmikinn hernað á Gasaströndinni berjast vígamenn Hamas-samtakanna enn af krafti gegn ísraelska hernum. Þá skjóta Hamas-liðar enn eldflaugum að Ísrael en ráðamenn í Ísrael og í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að Ísraelar geti ekki náð markmiðum ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahú um algeran sigur gegn hryðjuverkasamtökunum. 24. maí 2024 06:44 Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Fjölskyldur kvenna sem teknar voru fanga þegar Hamas-liðar réðust á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn hafa birt myndskeið af atburðarásinni sem sýnir konurnar blóðugar og óttaslegnar. 23. maí 2024 07:27 Mest lesið Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Erlent Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Innlent Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Erlent Þórdís Lóa ætlar ekki fram Innlent Fleiri fréttir NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Sjá meira
Halda áfram árásum á Rafah Í það minnsta þrjátíu manns hafa látið lífið í árásum Ísraelsmanna á Gasasvæðinu síðan alþjóðadómstóllinn í Haag skipaði Ísrael að stöðva innrás sína á Rafah á sunnanverðri Gasaströndinni. 25. maí 2024 14:59
Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins. 24. maí 2024 14:42
„Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Nemendur í háskólum Hollands hafa undanfarna daga reist tjaldbúðir á skólalóðum til stuðnings Palestínu, og margir mætt mikilli hörku lögreglu. Íslenskur nemandi lýsir mikilli samstöðu meðal stúdenta sem fara fram á að hollenskir háskólar taki skýrari afstöðu gegn ísraelskum stjórnvöldum og slíti tengslum við ísraelska háskóla og fyrirtæki. 24. maí 2024 10:58
Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Þrátt fyrir umfangsmikinn hernað á Gasaströndinni berjast vígamenn Hamas-samtakanna enn af krafti gegn ísraelska hernum. Þá skjóta Hamas-liðar enn eldflaugum að Ísrael en ráðamenn í Ísrael og í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að Ísraelar geti ekki náð markmiðum ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahú um algeran sigur gegn hryðjuverkasamtökunum. 24. maí 2024 06:44
Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Fjölskyldur kvenna sem teknar voru fanga þegar Hamas-liðar réðust á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn hafa birt myndskeið af atburðarásinni sem sýnir konurnar blóðugar og óttaslegnar. 23. maí 2024 07:27