Skoðun

For­seti lýð­veldisins

Erlingur Hansson skrifar

Forseti lýðveldisins gegnir mikilvægu embætti. Hann getur og á að hafa afskipti af stjórn landsins. Stjórnmál fjalla um hvernig á að stjórna. Forseti Íslands hefur gegnt mikilvægu hlutverki í stjórnun íslenska lýðveldisins. Ég nefni hér nokkur dæmi um afskipti forseta lýðveldisins af stjórn landsins. Sveinn Björnsson var kjörinn forseti 17. júní 1944 af Alþingi. Hann hafði áður en hann varð sendiherra tekið þátt í stjórnmálum í landinu. Sem ríkisstjóri frá 1941 til 1944 hafði Sveinn afskipti af stjórnmálum. Nokkur dæmi:

  1. Í árslok 1942 skipaði Sveinn Björnsson landinu utanþingsstjórn. Eftir að hann varð forseti bjuggu stjórnmálaforingjar landsins við þá vissu að slíkt gæti Sveinn endurtekið. Í ársbyrjun 1950 ýtti sú vissa undir að þeir mynduðu ríkisstjórn. Þeir vissu að ella fengju þeir aðra utanþingsstjórn.
  2. Ásgeir Ásgeirsson hafði nokkrum sinnum úrslitáhrif á hvaða stjórn var mynduð. Hann beitti sér t.a.m. eftir að stjórn Hermanns Jónassonar fór frá völdum í árslok 1958. Vegna afskipta Ásgeirs varð til minnihlutastjórn Alþýðuflokks og síðar Viðreisnarstjórnin sem tók við völdum í árslok 1959.
  3. Kristján Eldjárn varð að grípa til ráðstafana vorið 1974. Í maí 1974 rufu þeir Kristján og Ólafur Jóhannesson þing og var nýtt Alþingi kosið á miðju sumri 1974.
  4. 1978 fól Kristján Lúðvík Jósefssyni að mynda ríkisstjórn en sú ákvörðun vakti eftirtekt erlendra ráðamanna í ríkjum NATO og víðar.
  5. Vigdís Finnbogadóttir sinnti vel þeirri skyldu forseta að fela stjórnmálaforingjum að mynda ríkisstjórn.
  6. Ólafur Ragnar Grímsson beitti málskotsrétti forseta í fyrsta sinn í byrjun júní 2004. Sú ákvörðun var að sjálfsögðu hápólitísk og breytti í raun eðli forsetaembættisins. Fram að þeim tíma voru margir þeirrar skoðunar að 26. grein stjórnarskrárinnar væri dauður bókstafur og yrði aldrei beitt. Enginn er á þeirri skoðun nú.

Þessi listi 6 dæma úr sögu landsins er ekki tæmandi.

Katrín Jakobsdóttir hefur sagt að hún hafi yfirgefið stjórnmálin í byrjun apríl 2024. Hún er þá að lýsa því að hún sagði af sér þingmennsku og hætti sem forsætisráðaherra og formaður stjórnmálaflokks. En hún býður sig fram til embættis forseta lýðveldisins. Hún er því ekki að yfirgefa stjórnmálin. Hún hefur breytt sínum stjórnmálaafskiptum. Katrín tekur nú þátt í stjórnmálum enda í framboði til forseta lýðveldisins sem er embætti stjórnmálamanns.

Höfundur er áhugamaður um sögu. 




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×