Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2024 09:00 Erlendur Eiríksson dómari lyftir hér rauða spjaldinu. Vísir/Diego Víkingur, Breiðablik og HK fögnuðu öll sigri í Bestu deild karla í fótbolta í gær þegar þrír síðustu leikirnir fóru fram í sjöttu umferðinni. Nú má sjá mörkin úr þessum leikjum hér inn á Vísi.
Jón Guðni Fjóluson lék sinn fyrsta leik með Víkingum og lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Aron Elís Þrándarson í 2-0 sigri Víkings á FH. Seinna markið bjuggu varamenn Víkinga til en Helgi Guðjónsson skallaði þá aukaspyrnu Karl Friðleifs Gunnarssonar í markið. Klippa: Mörkin og rauða spjaldið úr leik Víkings og FH Víkingar skoruðu seinna markið sitt manni færri eftir að fyrirliðinn Nikolaj Andreas Hansen fékk sitt annað gula spjald á 76. mínútu. Aron Bjarnason, Daniel Obbekjær og Benjamin Stokke skoruðu mörk Blika í 3-0 sigri á Fylki í Árbænum. Blikar hafa unnið fjóra af fyrstu sex leikjum sínum og eru í öðru sæti deildarinnar. KR-ingar enduðu níu á vellinum í 2-1 tapi á heimavelli á móti HK-ingum. Atli Þór Jónasson og Arnþór Ari Atlason skoruðu mörk HK sem hefur unnið KR og Víking í síðustu tveimur leikjum sínum eftir að hafa verið án sigurs eftir fjóra fyrstu leikina. KR-ingurinn Kristján Flóki Finnbogason fékk beint rautt spjald á 70. mínútu og liðsfélagi hans Moutaz Neffati fékk sitt annað gula spjald átta mínútum fyrir leikslok. Atli Sigurjónsson minnkaði muninn með marki beint úr hornspyrnu á 78. mínútu en nær komust Vesturbæingar ekki. Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin og rauðu spjöldin úr þessum leikjum. Klippa: Mörkin úr leik Fylkis og Breiðabliks Klippa: Mörk og rauð spjöld í leik KR og HK
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Breiðablik HK KR FH Fylkir Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira