Pútín hlaut yfirburðarsigur í mjög svo umdeildum kosningum sem haldnar voru í mars. Hann var svo gott sem einn í framboði þar sem flestir mögulegir andstæðingar hans eru dánir, í fangelsi eða í útlegð. Hann hefur á undanförnum árum losað sig við pólitíska andstæðinga sína og fært gífurlegt vald á eigin hendur. Nánast allt andóf hefur verið brotið á bak aftur í Rússlandi.
Enginn leiðtogi Rússlands hefur setið lengur við völd, nema Jósef Stalín.
Pútín tók við völdum í Rússlandi af Boris Jeltsín á gamlársdag árið 1999, fyrst sem starfandi forseti þegar Jeltsín sagði óvænt af sér. Pútín hefur verið við völd síðan en frá 2008 til 2012 varð hann forsætisráðherra og Dmítríj Medvedev, forsætisráðherra hans, varð forseti.
Putin watches the presidential regiment on parade through a flurry of wet snow pic.twitter.com/O9bYBnqTXH
— max seddon (@maxseddon) May 7, 2024
Þetta þurfti Pútín að gera þar sem stjórnarskrá Rússlands meinaði forseta að sitja lengur í embætti en tvö fjögurra ára kjörtímabil.
Pútín varð þó aftur forseti árið 2012 og síðan þá hefur hann gert umfangsmiklar breytingar á stjórnarskrá landsins. Kjörtímabil forseta er orðið sex ár og gæti Pútín, sem er 71 árs gamall, í rauninni setið annað kjörtímabil þegar þessu líkur árið 2030.
Í greininni hér að neðan má lesa ítarlega yfirferð yfir ævi Pútíns.
Rússland er verulega einangrað á heimssviðinu um þessar mundir, vegna innrásarinnar í Úkraínu, og hefur ríkið verið beitt nokkuð umfangsmiklum viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.
Fá ríki á Vesturlöndum sendu erindreka á innsetningarathöfnina. Ísland er eitt þeirra sem sendi ekki fulltrúa á athöfnina, samkvæmt svari frá utanríkisráðuneytinu við fyrirspurn fréttastofu.
Sjá einnig: Rússar segja íslenska málaliða í Úkraínu
Samskipti Íslands og Rússlands hafa verið í lágmarki frá síðasta sumri, þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þáverandi utanríkisráðherra, tilkynnti að Rússum yrði gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins og sendiherrann færi aftur til Rússlands. Þá var sendiráði Íslands í Mosvku lokað.

Miklar breytingar á rússnesku samfélagi
Frá því innrásin hófst í febrúar 2022 hefur Pútín gert umfangsmiklar breytingar á rússnesku samfélagi. Lög sem meina fólki að tala illa um rússneska herinn hafa verið notuð til að brjóta öll mótmæli á bak aftur og fangelsa fólk fyrir mótmæli og andóf.
Sjá einnig: Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní
Hagkerfi Rússlands hefur verið breytt með innrásina í huga og snýr það að mestu leyti um framleiðslu hergagna og stríðsreksturinn.
Þá hefur Pútín gert breytingar á menntakerfi Rússlands sem ætlað er að auka föðurlandsást, fordæmt vísindamenn sem svikara, gert rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni hærra undir höfði og unnið að breytingum á hlutverki kvenna í rússnesku samfélagi.
Sjá einnig: Dæmd í þrælkunarvinnu fyrir að þykjast pota í brjóst Móðurlandsins
Höfuð rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar lýsti því yfir í morgun að guð sjálfur hefði komið Pútín í embætti og treyst honum fyrir stjórn Rússlands.
Í greiningu Washington Post kemur fram að unnið sé að því í Rússlandi að undirbúa yngri kynslóðir í Rússlandi til að líta á Vesturlönd sem óvin Rússlands í baráttu um tilvist ríkisins.

Pútín er sagður vilja endurreisa Rússland sem ofurveldi á grunni rétttrúnaðarkirkjunnar. Rússland eigi að berjast fyrir gildum kirkjunnar og gegn gildum sem talin eru vestræn. Með þetta í huga hefur dómskerfinu verið beitt gegn eigendum klúbba og til að stöðva samkvæmi. Listamenn og aðrir áhrifavaldar hafa verið beittir miklum þrýstingi.
Grannt fylgst með varnarmálaráðuneytinu
Í ræðu sinni í morgun hét Pútín því að verja réttindi og frelsi Rússa auk þess að verja fullveldi og sjálfstæði ríkisins. Sérfræðingar segja mögulegt að nú þegar nýtt kjörtímabil er hafið ætli Pútín að hækka skatta til að fjármagna stríðsreksturinn í Úkraínu og fara í frekari herkvaðningu.
Ríkisstjórn Rússlands sagði af sér í morgun, eins og almennt er gert við upphafi nýs kjörtímabils en Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, segir mögulegt að forsetinn muni skipa nýjan forsætisráðherra strax í dag, þó hann hafi tvær vikur til þess.

Í ræðunni sagði Pútín að eingöngu þeir sem hefðu sannað hollustu sína við föðurlandið myndu taka embætti í nýrri ríkisstjórn.
Grannt er fylgst með varnarmálaráðuneytinu, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar, en Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, hefur verið undir miklum þrýstingi vegna þess hvernig hann hefur haldið á spöðunum varðandi stríðið í Úkraínu. Aðstoðarráðherra hans og náinn bandamaður, Timur Ivanov, var í síðasta mánuði ákærður fyrir mútuþægni.