Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, fjármálaráðherra í endurnýjuðu samstarfi ríkisstjórnarflokkanna þriggja sem var kynnt í dag.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir Bjarna í raun hafa verið heiðraðan með því að vera gerður forsætisráðherra þrátt fyrir að hann hafi þurft að segja af sér sem fjármálaráðherra og sé sá ráðherra sem landsmenn treysti síst.
„Síðast þegar hann gegndi forsætisráðherraembætti þá fór það ekki vel vegna yfirhylmingar og annars spillingarmáls sem tengdist uppreist æru og barnaníðingum. Þetta er ekki gott „lúkk“ fyrir þessa nýju ríkisstjórn,“ segir Þórhildur Sunna.
Sýni að þeim hafi verið alvara með kosningaloforðunum
Jákvæðu fréttirnar séu að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr fjármálaráðuneytinu sem Þórhildur Sunna segir að kunni aðeins að stjórna fjármálum með kreddum og úreltri hugmyndafræði sem skili engu og skaði þjóðarhag. Þá sé jákvætt að svo virðist sem að til standi að ljúka við borgarlínu sem hafi legið í dvala með Sjálfstæðisflokkinn í ráðuneytinu.
Nú þurfi Framsóknarflokkurinn aftur á móti að standa við stóru orðin og sýna að honum hafi verið alvara með kosningaloforðum sínum. Fram að þessu hafi hann skýlt sér á bak við það að Sjálfstæðisflokkurinn héldi um budduna í fjármálaráðuneytinu.
„Munu þau setja á hvalrekaskatt? Munu þau hækka bankaskatt? Ætla þau að gera eitthvað í alvörunni til að byggja upp húsnæði á Íslandi vegna þess að það er það sem brennur á fólinu í landinu núna,“ segir þingflokksformaðurinn.
Þórhildur Sunna veltir því einnig fyrir sér hvort að nú standi til að fjármagna eitthvað af loforðum annarra ráðherra Framsóknarflokksins eins og listamannalaun Lilja Alfreðsdóttur eða farsældarfrumvarp Ásmundar Einars Daðasonar.
„Nú hafa þau völdin, nú hafa þau áhrifin til þess að standa við stóru orðin og geta ekki falið sig á bak við stóra bróður og sagt að hann hafi bannað þeim að skila sínu,“ segir hún.

Virðingarleysi gagnvart þjóðinni
Spurð að því hvort að Píratar styddu hugmynd Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, um vantraust á nýju stjórnina segir Þórhildur Sunna að hún gerði það. Stjórnin hafi ekki sýnt að henni sé treystandi og hvert upphlaupið reki annað.
Það sé orðið að einhvers konar raunveruleikasjónvarpi að fylgjast með ríkisstjórninni ræða sín á milli hvort hún vilji vinna áfram saman eða ekki.
„Mér finnst þetta sýna ákveðið virðingarleysi gagnvart þjóðinni. Þau soga til sín alla athyglina í herberginu, það gerist ekkert annað í samfélaginu á meðan þau eru á sínum skiptimarkaði með notuðu ráðherrastólana sína. Þetta er komið gott og ég vona að þau sjái að það þurfi að minnsta kosti að ákveða kjördag og gefa okkur einhvern endapunkt á þessu svo að við vitum að minnsta kosti hvar dagatalið á að byrja að telja niður,“ segir Þórhildur Sunna.