Sjómannafélagið stundi skemmdarstarfsemi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. mars 2024 12:03 Heiðrún Lind Marteinsdóttir hefur ýmislegt við Sjómannafélag Íslands að athuga. vísir/Arnar Halldórs Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir fyrirsvarsmenn Sjómannafélags Íslands ekki sýna neinn vilja til að semja um kaup og kjör fyrir hönd sinna félagsmanna. Samningar þeirra hafa verið lausir frá árinu 2019.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir ritar grein á Vísi í dag. Þar segir hún öll stéttarfélög sjómanna hafa samþykkt kjarasamninga til langs tíma við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Með hinum nýju samningum sé kveðið á um töluverðar kjarabætur og aukin réttindi til handa félagsmönnum allra þessara stéttarfélaga. „Þrátt fyrir fyrrgreint er nokkur fjöldi sjómanna á skipum sem gerð eru út af fyrirtækjum innan vébanda SFS með lausa kjarasamninga og hafa verið allt frá árslokum 2019. Um er að ræða sjómenn sem eiga aðild að Sjómannafélagi Íslands, félagi sem virðist vera málamyndastéttarfélag. Fyrir það líða hlutaðeigandi sjómenn,“ segir Heiðrún Lind. Fyrirsvarsmenn „hins svokallaða stéttarfélags“ hafi engan vilja sýnt til þess að semja um kaup og kjör sinna félagsmanna. Ekki hafi verið óskað funda, ekki hafi verið lagðar fram tillögur og ekkert í raun verið lagt til málanna af hálfu fyrirsvarsmanna Sjómannafélagsins á þeim langa tíma sem liðinn sé frá því kjarasamningar losnuðu fyrir ríflega fjórum árum síðan. „Við alvarlegt athafnaleysi hins svokallaða stéttarfélags bætist síðan, að fyrirsvarsmenn þess hafa ítrekað farið með rangt mál í skemmdarstarfsemi sinni gagnvart þeim stéttarfélögum sem hafa unnið í þágu sinna félagsmanna við að ná hagfelldum kjarasamningum og þar með bættum kjörum fyrir sína félagsmenn. Engir kjarasamningar eru yfir gagnrýni hafnir og í samningum tveggja nær hvorugur öllu sínu fram. Skoðanir eru því vafalaust skiptar á kröfugerðum og kjarasamningum, bæði á meðal félagsmanna stéttarfélaganna og félagsmanna SFS. Undan þeim veruleika verður ekki vikist. Það má hins vegar gera þá kröfu að í skoðanaskiptum sé farið rétt með staðreyndir og málefnaleg rök sett fram. Þess hefur ekki orðið vart í orðræðu fyrirsvarsmanna Sjómannafélags Íslands.“ Heiðrún segir að svo virðist sem hið svokallaða stéttarfélag hafi ætlað að leika sambærilegan leik nú og fyrir ríflega ári síðan, þegar önnur stéttarfélög sjómanna skrifuðu undir kjarasamninga við SFS. „Þeir samningar voru felldir af öllum félögum nema Félagi skipstjórnarmanna. Í aðdraganda þeirra samninga lagði Sjómannafélag Íslands ekkert til málanna. Félagið skrifaði hins vegar undir hlutaðeigandi samninga og hóf síðan linnulausa niðurrifsstarfsemi um sömu samninga. Eftir að kjarasamningarnir voru felldir hefur ekkert heyrst frá félaginu og allt er á huldu um hvers háttar kjarabætur félagsmenn þess óskuðu sér. Af þeim sökum hefur SFS nú gert kjarasamninga við þau félög sem tefldu fram skýrum kröfum og tillögum til úrbóta á þeim samningum sem felldir voru. Það gerði Sjómannafélag Íslands ekki og við það situr.“ Hún segir ábyrgðarhluta að starfrækja stéttarfélag. „Slíkt félag er mikilvægur hirðir bæði réttinda og fjármuna félagsmanna sinna. Það félag sem sinnir ekki grunnskyldum gagnvart félagsmönnum, sem starfa á skipum innan vébanda SFS, getur ekki átt heimtingu á því að við það séu gerðir kjarasamningar. Á þeim stað er Sjómannafélag Íslands. Hjá hinu svokallaða stéttarfélagi þurfa fyrirsvarsmenn einfaldlega að gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart SFS og ekki síður gagnvart sínum félagsmönnum.“
Sjávarútvegur Kjaraviðræður 2023-24 Stéttarfélög Tengdar fréttir Segir tímalengd samningsins hafa setið í sjómönnum Formaður sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum 11. mars 2023 11:53 Sjómenn slíta viðræðum: „Vilja eignast Ísland og auðlindir okkar án þess að greiða fyrir það“ Stéttarfélög sjómanna slitu í gær kjaraviðræðum sínum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Viðræður hafa átt sér stað í nokkra mánuði en kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá því í lok 2019. 7. september 2021 10:14 Sjómannafélagið hafi fundið fyrir miklum þrýstingi Formaður Sjómannafélags Íslands segir félagið hafa fundið fyrir miklum þrýstingi en hann sé vongóður um að samningar náist fyrir rest. 21. júlí 2020 12:00 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
Segir tímalengd samningsins hafa setið í sjómönnum Formaður sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum 11. mars 2023 11:53
Sjómenn slíta viðræðum: „Vilja eignast Ísland og auðlindir okkar án þess að greiða fyrir það“ Stéttarfélög sjómanna slitu í gær kjaraviðræðum sínum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Viðræður hafa átt sér stað í nokkra mánuði en kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá því í lok 2019. 7. september 2021 10:14
Sjómannafélagið hafi fundið fyrir miklum þrýstingi Formaður Sjómannafélags Íslands segir félagið hafa fundið fyrir miklum þrýstingi en hann sé vongóður um að samningar náist fyrir rest. 21. júlí 2020 12:00