Lífið

Elísa Viðars orðin strákamamma

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Elísa Viðarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu og næringarfræðingur eignaðist sitt annað barn á dögunum.
Elísa Viðarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu og næringarfræðingur eignaðist sitt annað barn á dögunum. Vísir/Ívar Fannar

Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen eignuðust dreng 2. mars síðastliðinn. Elísa greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gær.

„Strákamamma 02.03.2022,“ skrifaði Elísa við mynd af syninum.

Um er að ræða annað barn parsins en fyrir eiga þau eina stúlku. 

Elísa greindi frá óléttunni í september í fyrra þar sem hún sagði fjöklskylduna spennta að jafna út leikinn í lok febrúar. Drengurinn lét bíða eftir sér og kom í heiminn nokkrum dögum eftir settan dag. 

„Ef allt gengur að óskum þá mun okkur litlu fjölskyldunni færast liðsstyrkur í lok febrúar. Við foreldrarnir höfum notið yfirtölunnar en erum spennt að jafna út leikinn,“ skrifaði Elísa við mynd af fjölskyldunni með sónarmynd við hönd.

Elísa er leikmaður Vals þar sem hún hefur verið fyrirliði síðastliðin ár. Auk þess á hún á 54 A-landsliðsleiki að baki. Rasmus leikur með Aftureldingu og dönsukennari við Hagaskóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.