Viðræðum var slitið fyrir tæpum tveimur vikum eða föstudaginn 9. febrúar og hafa samninganefndirnar ekki fundað síðan þrátt fyrir að óformleg samtöl hafi átt sér stað.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir Samtök atvinnulífsins hljóta að vera með nýtt útspil. „Ríkissáttasemjari hefur sagt að hann muni ekki boða til fundar nema hann sjái ástæðu til og að einhver breyting hafi átt sér stað, þannig ég met það svo að Samtök atvinnulífsins séu að koma eitthvað til baka,“ segir Ragnar.
Viðræðurnar strönduðu á kröfum breiðfylkingarinnar um forsendur samninganna, það er að segja um áhrif þróunar verðbólgu og vaxta. Forysta Samtaka atvinnulífsins sagði forsenduákvæðin binda hendur Seðlabankans og hefta sjálfstæði hans en seðlabankastjóri hefur hins vegar síðar sagt að slík ákvæði skerði ekki sjálfstæði bankans.
Heilmikið eftir
Ragnar segir ýmislegt þegar hafa unnist en margt standa eftir.
„Við þurfum að funda með sveitarfélögum ef við náum þessu áfram. Við gerum náttúrulega kröfu um að gjaldskrárhækkanir gangi til baka og sömuleiðis líka um að þær verði skilyrtar við ákveðin mörk. Við eigum eftir að funda með stjórnvöldum og sjá hver þeirra aðkoma verður. Síðan eru fjölmörg atriði sem enn eru óleyst á milli okkar og Samtaka atvinnulífsins,“ segir Ragnar.
„Við erum komin upp einhverjar brekkur en það er heilmikið eftir og þess vegna skiptir mjög miklu máli að koma þessu af stað sem allra fyrst.“