Erlent

Segir veikindi föður síns mögu­lega munu greiða fyrir sáttum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Harry og Meghan heimsóttu Bresku-Kólumbíu í vikunni, þar sem þau voru viðstödd æfingar fyrir Invictus leikana árið 2025. Prinsinn stofnaði leikana fyrir særða, slasaða og veika hermenn.
Harry og Meghan heimsóttu Bresku-Kólumbíu í vikunni, þar sem þau voru viðstödd æfingar fyrir Invictus leikana árið 2025. Prinsinn stofnaði leikana fyrir særða, slasaða og veika hermenn. Getty/Andrew Chin

Harry, hertogi af Sussex, hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn til að ná sáttum við fjölskyldu sína eftir að faðir hans, Karl III Bretakonungur, greindist með krabbamein.

„Ég elska fjölskylduna mína,“ sagði Harry í samtali við Will Reeve, einn þáttastjórnenda Good Morning America, í morgun. „Og ég er þakklátur fyrir þá staðreynd að ég gat farið um borð í flugvél og farið og hitt föður minn og varið tíma með honum,“ bætti hann við.

Samskipti Harry við konungsfjölskylduna eru sögð hafa verið afar takmörkuð eftir útgáfu æviminninga hans, Varaskeifan, og eftir viðtal Opruh Winfrey við hann og eiginkonu hans Megan Markle.

Hertogahjónin hafa meðal annars sakað konungsfjölskylduna um „ómeðvitaða fordóma“ vegna litarháttar Meghan og sonar þeirra og þá greindi Harry í bókinni frá atviki þar sem bróðir hans Vilhjálmur réðist á hann.

Í fyrrnefndu viðtali sem birt var í morgun talaði Reeve um eigin reynslu af því hvernig veikindi gætu sameinað fjölskyldur en faðir sjónvarpsmannsins, Súperman-leikarinn Christopher Reeve, lamaðist þegar hann féll af hestbaki árið 1995 og lést árið 2004, aðeins 52 ára gamall.

Reeve spurði Harry hvort að það væri mögulegt að veikindi föður hans myndu sameina fjölskylduna á ný.

„Algjörlega. Já, ég er viss um það. Allar þessar fjölskyldur sem ég sé á hverjum degi; styrkur þess þegar fjölskyldan kemur saman. Ég held að hvers konar sjúkdómar, hvers konar veikindi, sameini fjölskyldur,“ svaraði hertoginn.

Harry vildi ekki svara spurningum um heilsu föður síns og sagði það vera eitthvað sem yrði þeirra á milli. Hann gaf hins vegar upp að fyrirhugaðar væru ferðir til Bretlands eða með millilendingu á Bretlandi og hann myndi nýta þau tækifæri til að hitta fjölskylduna sína, eins mikið og væri mögulegt.

Greint var frá því á dögunum að Karl hefði greinst með krabbamein þegar hann gekkst undir skurðaðgerð vegna stækkaðs blöðruhálskirtils. Krabbameinið fannst ekki í blöðruhálskirtlinum en ekki hefur verið gefið upp um hvers konar krabbamein er að ræða.

Karl tilkynnti sonum sínum persónulega um veikindinn og Harry ferðaðist strax til Lundúna frá heimili sínu í Kaliforníu til að hitta föður sinn. Hann snéri fljótt aftur og hitti ekki Vilhjálm bróður sinn.

Vilhjálmur er sagður afar ósáttur við bróður sinn og samskipti þeirra sögð engin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×