Lífið

Elísa­bet og Áki til­kynna kynið: „Ég er svo stressuð“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Elísabet og Áki reka heilsustaðina Makai.
Elísabet og Áki reka heilsustaðina Makai.

Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísa­bet Metta Ásgeirs­dótt­ir og Ágúst Freyr Halls­son, betur þekktur sem Áki, eiga von á stúlku í byrjun næsta árs. 

Um er að ræða þeirra annað barn en fyrir eiga þau Viktor Svan, fimm ára.

Elísabet og Áki tilkynntu kynið með einlægu myndskeiði á YouTube rás Elísabetar. Þar má sjá þegar parið fer í sónar og þegar þau opna umslagið með miða sem segir til um kyn barnsins. 

„Okkur langar náttúrulega mjög mikið í stelpu af því við eigum einn fullkominn strák en það skiptir engu máli. Bara að þetta sé heilbrigt barn,“ segir Elísabet sem hafði grunað að hún gengi með stúlku þar sem henni hefur liðið öðruvísi en á fyrr meðgöngu.

„Ég er svo stressuð,“ segir Elísabet. Stuttu síðar opnar Áki umslagið og dregur upp bleikan miða.

Myndskeiðið má sjá í spilaranum hér að neðan.

Brúðkaupsveisla síðar

Elísabet og Áki gengu í heilagt hjónaband í desember í fyrra, nánar tiltekið 22. desember. Athöfnin virðist hafa verið fámenn og lofa þau veislu síðar.

„Hjón síðan þá og ég elska þennan mann alltaf meira og meira. Ég veit ekki hvar ég væri án hans og öllu því sem við höfum búið til saman. 2026 we will party,“ skrifaði Elísabet og deildi myndum frá athöfninni á Instagram.


Tengdar fréttir

Elísabet Metta og Áki trúlofuð í París

Parið Elísa­bet Metta Ásgeirs­dótt­ir og Ágúst Freyr Halls­son, betur þekktur sem Áki, deildu fréttum af trúlofun sinni í París á Instagram. Saman reka þau staðinn Maikai og hafa verið par í sex ár. Ágúst bað hennar með hring ömmu Elísabetar sem hún hefur haft augastað á frá unga aldri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.