Musk var á ráðstefnu á vegum New York Times. Í viðtali á ráðstefnunni var hann spurður út í það að forsvarsmenn margra fyrirtækja hefðu hætt að auglýsa á X vegna áhyggja af auknum kynþáttafordómum og rasisma og að hann sjálfur væri að ýta undir það á samfélagsmiðlinum.
Sjá einnig: Auglýsendur áhyggjufullir vegna ummæla Musks og gyðingahaturs
„Ekki auglýsa,“ sagði hann. „Ef einhver ætlar að reyna að kúga mig, kúga mig með peningum. Farið í rassgat,“ sagði Musk. „Farið. Í. Rassgat! Er það skýrt? Ég vona það. Hæ Bob,“ sagði Musk. Þar virtist hann beina orðum sínum að Bob Iger, forstjóra Disney, sem hafði ávarpað ráðstefnuna fyrr í gær.
Iger hafði nefnt þá ákvörðun að hætta að auglýsa á X og sagði að tengsl Disney við X hefðu ekki verið jákvæð. Ekki liggur fyrir hvort hann var í salnum eða ekki.
Sjá má þann hluta ummæla Musks sem um ræðir í spilaranum hér að neðan. Allt viðtalið má svo sjá hér.
whoa go fuck yourself, Elon Musk says to Bob Iger and others who pull advertising from X
— j.d. durkin (@jd_durkin) November 29, 2023
at this point it s almost as if he s watching the old Iron Man movies and doing a reverse Tony Stark impression pic.twitter.com/csXxeLH2wG
Samkvæmt frétt New York Times hafa um tvö hundruð stór fyrirtæki hætt að auglýsa á X og er talið að það gæti kostað fyrirtækið um 75 milljónir dala á núverandi ársfjórðungi. Musk viðurkenndi í viðtalinu að tap þessara auglýsinga myndi reynast erfitt.
„Það sem þetta viðskiptabann mun gera er að drepa fyrirtækið,“ sagði Musk. Hann sagði að ef það myndi gerast myndi almenningur kenna forsvarsmönnum þeirra fyrirtækja sem hafa hætt að auglýsa á X um. Hann ætlaði ekki að gera breytingar.
„Svo fer sem fer,“ sagði Musk.
Keypti Twitter á 44 milljarða
Eins og frægt er keypti Musk Twitter í fyrra á 44 milljarða dala. Eftir að hann skrifaði undir kaupsamning reyndi Musk ítrekað að komast undan honum og sleppa við kaupin. Hann sakaði stjórn Twitter meðal annars um að hafa ekki útvegað sér gögn sem hann bað um varðandi raunverulegan fjölda falskra reikninga, eða botta, á samfélagsmiðlinum.
Við kaupin stigmögnuðust skuldir fyrirtækisins og vaxtagreiðslur hækkuðu til muna. Þá hefur Musk sagt upp meira en helmingi starfsmanna fyrirtækisins og hefur hann verið sakaður um að greiða ekki reikninga og leigu, svo eitthvað sé nefnt.
Forsvarsmenn fjárfestingabanka sem tóku á sig margra milljarða dala skuldir svo Musk gæti keypt Twitter þykja ekki líklegir til að taka ummælum Musks fagnandi.
Rétti höturum sínum hlaðna byssu
Um miðjan nóvember lýsti Musk yfir stuðningi við færslu um að gyðingar ýttu undir hatur á hvítu fólki. Þar var einnig gefið í skyn að gyðingar væru að ýta undir flutninga flótta- og farandfólks.
„Þú hefur sagt hinn raunverulega sannleika,“ skrifaði Musk undir færsluna. Hann bölsótaðist svo út í samtökin Anti Defamation League eða ADL en það eru samtök sem stofnuð voru til að berjast gegn gyðingahatri og berjast nú gegn alls kyns hatursorðræðu.
Áðurnefnd færsla sem Musk tjáði sig við hefur verið sett í samhengi við langlífa samsæriskenningu um að auðugir gyðingar séu að reyna að nota innflytjendur til að velta hvíta manninum úr sessi. Þessari samsæriskenningu hefur verið lýst af réttindasamtökum gyðinga sem þeirri banvænustu í nútímasögu Bandaríkjanna.
Eftir að Musk lét þessi orð falla á X lýstu forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja því yfir að þeir myndu ekki auglýsa á samfélagsmiðlinum.
Skömmu síðar birtu samtökin Media Matters skýrslu þar sem því var haldið fram að auglýsingar stórfyrirtækja birtust við færslur sem innihalda hatursorðræðu, lofyrði um nasisma og gyðingahatur. Þá fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hættu að auglýsa á X.
Musk höfðaði í kjölfarið mál gegn Media Matters og umdeildur ríkissaksóknari Texas hóf rannsókn á samtökunum, jafnvel þó hvorki þau né X séu með nokkra starfsemi í Texas.
Musk var spurður út í þessa færslu í viðtalinu í gær og bölsótaðist hann út í fjölmiðla fyrir að fjalla um hana og gefa í skyn að hann væri gyðingahatari. Hann sagðist ekki hafa meint neitt gegn gyðingum þegar hann skrifaði áðurnefnd ummæli.
„Það sem ég gerði var að rétta hlaðna byssu til þeirra sem hata mig, og eru í sjálfu sér gyðingahatarar,“ sagði Musk. Hann sagðist ekki hafa ætlað sér það og sagðist sjá eftir þessu.