Ástin og þráin alltaf eins Lovísa Arnardóttir skrifar 26. nóvember 2023 08:01 Rakel Adolphsdóttir segir að á viðburðinum verði farið yfir helstu ástarbréf Kvennasögusafnsins. Vísir/Vilhelm Sagnfræðingur segir ástina alltaf eins. Það megi lesa úr gömlum ástarbréfum sem séu til á Kvennasögusafninu. Oftast sé þráin mest í upphafi sambands og svo taki meiri praktík við. Skekkja sé þó í safninu því flest bréfin komi frá pörum þar sem kom til sambands. Önnur hafi líklega endað í eldinum. „
Það eru einhver ástarbréf, en þau eru mjög fágæt. Það kom mér í raun á óvart hvað ég leit á mörg söfn þar sem voru engin ástarbréf. En var að finna bréf frá eiginmanni til eiginkonu sem voru af praktískum toga,“ segir Rakel Adolphsdóttir sagnfræðingur um fjölda ástarbréfa á Kvennasögusafninu. Rakel ætlar á mánudag að fjalla um hvers konar ástarbréf eru afhent safninu til varðveislu, hver skrifaði þau og fyrir hvern, hvernig aðgengi er að þeim sem og hvernig er að kafa ofan í einkalíf annarra í fræðilegum tilgangi. Það mun hún gera á sérstöku fræðakaffi á vegum Borgarbókasafnsins í Spönginni. En er ástin ekki alltaf eins? „Það er ótrúlega skemmtilegt að lesa bréfin. Öll nema eitt þeirra sem ég er að fjalla um voru skrifuð fyrir meira en 80 árum og eru því í eldri kantinum. En ástin er alltaf eins, og þráin,“ segir Rakel. Hún segir að hún hafi flokkað bréfin í þrjá flokka. „Þetta eru oftast ungt fólk, í upphafi sambands, sem ganga svo síðar í hjónaband. Þetta er tilhugalífið og það sem býr til bréfin eru fjarlægðir. Þá er svo mikil þrá og ósk eftir nándinni.“ „Bréfið er tveir og hálfur metrar og það er skrifað báðu megin. Bréfið átti að vera nógu langt til að umvefja hana,“ segir Rakel um bréfið á myndinni. Það skrifaði Sigurbjörn Á Gíslason til Guðrúnar Lárusdóttur á meðan hann var prestur í Danmörku. Þau giftust ári eftir að bréfið var skrifað. Kvennasögusafn Hún segir það áhugavert í bréfunum að karlmenn virðist miklu heitfengari en konur en segir að það geti helgast af tímanum sem þau eru skrifuð á. „Konur eru einhvern veginn lágstemmdari eða hlédrægari. Það er öðruvísi tónn í bréfum þeirra. Það gæti verið eitthvað í samskiptum sem veldur því en það er ekki algilt. Þær lýsa líka þrá en eru kannski meira undir rós á meðan karlmennirnir segja það berari orðum sem þeir eru að hugsa.“ Rakel segir það ekki algilt að samböndin endi með giftingu. Sem dæmi sé eitt bréf skrifað af pari þar sem sambandið enda með sambandsslitum. „Þau ganga ekki að eiga hvort annað. Það er fólk af lægri stétt, verkafólk. Þau búa með öðrum og eru að stelast til að skrifa og virðist ekki geta stofnað til búskaps sjálf. Þessi bréf eru skrifuð um 1930,“ segir Rakel. Afkomendur komi með bréfin Hún segir einnig bréf þar sem kona skrifar til annarrar konu en segir að sambandsstaða þeirra liggi ekki fyrir. „Þar er til dæmis ein kona að lýsa því hvernig hún vilji kyssa aðra konu en svo vitum við ekkert hvort hún fékk svarbréf eða hvernig það hefur litið út,“ segir Rakel og að yfirleitt sé ekki bréf beggja á safninu nema sambandið hafi endað í hjónabandi. Það sé vegna þess að bréfin komi yfirleitt til þeirra í gegnum afkomendur. „Ef afkomendur koma með þau eru það yfirleitt bréf beggja aðila og er eitthvað sem endaði vel. Með börnum og buru og er þá eitthvað sem börnin halda upp á. Þegar þau eru orðin fullorðin koma þau svo með bréfin,“ segir Rakel og að þannig sé ákveðin skekkja því yfirleitt rati það bara til þeirra sem endi vel. „Það sem ekki rataði í eldinn. Því oft er talað um að brenna bréfin. Það er sterkt þema,“ segir Rakel og hlær. Heldurðu að fólk sé enn að skrifa ástarbréf? „Ég held að þau skrifi ástarskeyti, eða ástarsendingar. Ég held að það sé ekki mikið af bréfum skrifuð í dag sem þú getur haldið á og snert og lesið aftur og aftur. Þau eru að verða mjög fágæt. Kannski verður þetta til þess að fleiri skrifi bréf,“ segir Rakel og að hún viti til þess að eldri konur jafnvel vorkenni þeim yngri að fá ekki að upplifa þetta. Að skrifa bréf, bíða eftir svari og fá það svo. Á myndinni er bréf Guðrúnar Lárusdóttur til Sigurbjarnar Á Gíslasonar. Rakel segir að oft hafi fylgt hárlokkur eða mynd með bréfum. Kvennasögusafn „Að fá ekki að þroska sambandi í gegnum bréfaskriftir. Það er allt öðruvísi að skrifa margar blaðsíður af hugsunum og tilfinningum en að skrifa það í stuttu skeyti.“ Rakel segir að samhliða tækniframförum sjái hún breytingar í bréfunum. Sem dæmi í kringum 1940 séu breytingar á bréfunum. Þá hafi síminn verið kominn en símstöðin enn hlustað á öll samtölin. „Þau gátu ekki sagt frá sínum dýpstu þrám og það rataði því kannski frekar í bréfin.“ Rakel Adolphsdóttir segir stundum óþægilegt að lesa bréfin. Sumir segi beint út að þeir voni að aldrei lesi neinn það sem þau skrifi um þrár sínar og ást. Vísir/Vilhelm Hún segir ekki algengt að finna ástarbréf á söfnum en að eflaust séu þau mörg þar. En ekki þannig flokkuð. Hún segir að það geti allir komið með ástarbréf á safnið. Þegar fólk komi með slíkt fylgi slíkum gjöfum oft skilmálar um að ekki megi opna þau fyrr en eftir 80 eða 20 ár eða eitthvað slíkt. Hún segir fræðakaffið opið öllum á mánudag. Það geti allir komið og hlustað. „Það er gaman að gera þetta fyrir aðventuna í ró og kertaljósi. Ég held þetta verði hugguleg stund í skammdeginu.“
Söfn Ástin og lífið Tengdar fréttir Óumbeðin ástarbréf eldklárra og eftirsóttra gella Fjöllistahópurinn Eldklárar og eftirsóttar gefa í dag út ljóðabókina Óumbeðin ástarbréf á Slippbarnum við gömlu höfnina í Reykjavík. 15. júní 2023 09:34 Bjóða fólki að senda ástarbréf frítt Um helgina og fram á Valentínusardag, sem er næsta þriðjudag, verður sérstakur hjartapóstkassi staðsettur í Kringlunni þar sem fólk getur skrifað eldheita ástarkveðju og póstlagt frítt með Póstinum. 11. febrúar 2023 12:50 Þarf ekki alltaf flugelda til að halda í neistann í hjónabandinu „Það voru töfrar í loftinu sem leystu eitthvað úr læðingi og þá var ekki aftur snúið,“ segir leikkonan og listakonan Svandís Dóra Einarsdóttir um fyrstu kynni hennar og eiginmannsins Sigtryggs Magnasonar. 6. nóvember 2022 10:24 Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Fleiri fréttir Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Sjá meira
Óumbeðin ástarbréf eldklárra og eftirsóttra gella Fjöllistahópurinn Eldklárar og eftirsóttar gefa í dag út ljóðabókina Óumbeðin ástarbréf á Slippbarnum við gömlu höfnina í Reykjavík. 15. júní 2023 09:34
Bjóða fólki að senda ástarbréf frítt Um helgina og fram á Valentínusardag, sem er næsta þriðjudag, verður sérstakur hjartapóstkassi staðsettur í Kringlunni þar sem fólk getur skrifað eldheita ástarkveðju og póstlagt frítt með Póstinum. 11. febrúar 2023 12:50
Þarf ekki alltaf flugelda til að halda í neistann í hjónabandinu „Það voru töfrar í loftinu sem leystu eitthvað úr læðingi og þá var ekki aftur snúið,“ segir leikkonan og listakonan Svandís Dóra Einarsdóttir um fyrstu kynni hennar og eiginmannsins Sigtryggs Magnasonar. 6. nóvember 2022 10:24