Skoðun

Við hendum of miklu af mat

Bergrún Ólafsdóttir skrifar

Matarsóun er alltof mikil á Íslandi. Við hendum of miklu af mat og á það jafnt við um einstaklinga, verslanir sem og matvælaframleiðendur og veitingastaði. Umhverfisáhrifin af matarsóun eru mikil en hver einstaklingur hér á landi hendir um 20-25 kg af mat árlega, sem að stórum hluta væri hægt að nýta áfram. Við þurfum ákveðna vitundarvakningu þegar kemur að matarsóun og fleiri þurfa að leggja baráttunni lið.

Við sem störfum á dagvörumarkaði berum mikla ábyrgð í þessum málum en getum því haft meiri áhrif fyrir vikið. Samkaup hafa lengi látið baráttuna gegn matarsóun sig miklu varða en með verkefninu Mataraðstoð gegn matarsóun, sem hófst á síðasta ári, höfum við séð verulegan árangur.

Verkefnið hófst þannig að fimm verslanir okkar gáfu 60-70 kassa á hverjum degi til Hjálpræðishersins. Þar er maturinn nýttur til þess að elda heitar og næringarríkar máltíðir sem eru gefnar áfram til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Í dag er verkefnið í átta verslunum okkar og gefur allt að 300 manns að borða daglega. Það besta við þessi verkefni er að við erum að minnka sóun og hjálpa fólki í neyð, en á sama tíma dregur úr magni sorps sem til fellur hjá verslunum okkar, sem er mikill kostur.

Nú þegar hafa Samkaup gefið til þessa verkefnis mat og aðrar nauðsynjavörur fyrir um 4 milljónir króna á mánuði frá því í október 2022, sem er auðvitað frábær árangur – en við getum gert enn betur.

Við vitum hvað virkar hjá okkur, en í baráttunni gegn matarsóun þarf fyrst og fremst að auka fræðslu og sýna fólki hvaða áhrif matarsóun hefur á umhverfið. Umfjöllun þarf að vera mikil og jákvæð þar sem bent er á vandann á lausnamiðaðan hátt. Fleiri verslanir og framleiðendur þurfa að vera virk í baráttunni og auka þarf samstarf þeirra við ríki og sveitarfélög, enda ræðst framtíðin að miklu leyti af stefnu stjórnvalda í umhverfismálum.

Matarsóun er vandamál sem við stöndum frammi fyrir, ekki aðeins sem þjóð, heldur heimsbyggðin öll, og er þessi vandi ólíklega á förum í næstu framtíð. Því þarf að taka hann föstum tökum og vinna saman að því að minnka skaðann. Við hjá Samkaupum munum halda áfram að leggja okkar af mörkum og óskum eftir að fleiri taki þátt í verkefninu, sérstaklega þeir sem hafa mest áhrif.

Tækifærin eru augljós en við náum ekki árangri nema fleiri komi að borðinu. Verum leiðandi og sýnum ábyrgð gagnvart umhverfi okkar.

Höfundur er verkefnastjóri umhverfis og samfélags hjá Samkaupum.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×