Katrín segir hugsanlegt að Bjarni taki annað ráðuneyti Vésteinn Örn Pétursson og Bjarki Sigurðsson skrifa 10. október 2023 17:15 Bjarni og Katrín í aðdraganda kosninganna 2021. Vísir/Vilhelm Forsætisráðherra segir ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að segja af sér ráðherraembætti vera virðingarverða og rétta. Ákvörðunin hafi þó alfarið komið frá honum sjálfum. Stjórnin standi traustum fótum og ekki sé von á kosningum. Hugsanlega komi Bjarni til með að taka við öðru ráðherraembætti. „
Þetta er auðvitað mjög stór ákvörðun sem fjármála- og efnahagsráðherra tekur, og hann fór mjög vel yfir hana á blaðamannafundi morgunsins,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, um þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að segja af sér embætti. Bjarni kynnti ákvörðunina á blaðamannafundi í morgun, þar sem hann sagði ástæðuna vera álit Umboðsmanns Alþingis um söluna á Íslandsbanka. Niðurstaða Umboðsmanns var sú að í ljósi þess að faðir Bjarna var á meðal kaupenda hefði Bjarna brostið hæfi þegar hann samþykkti tillögu Bankasýslunnar um söluna. Bjarni fór á fundinum yfir þær athugasemdir sem hann hafði við álit Umboðsmanns, en sagðist engu að síður munu virða það og axla ábyrgð, áður en hann tilkynnti um afsögn sína. „Mér finnst þetta ákvörðun sem er mjög virðingaverð. Mér finnst fjármálaráðherra á öllum stigum þessa máls, þó hann hafi verið gagnrýndur, hafa leitast við að axla ábyrgð á þessari framkvæmd. Kannski má segja að sú ábyrgð hafi orðið endanleg í dag, með þessari ákvörðun,“ segir Katrín. Aðspurð hvort henni sjálfri hafi þótt rétt að Bjarni segði af sér í þessari stöðu sagði Katrín ákvörðunina alfarið Bjarna að taka. „En ég hef mikinn skilning á þessari ákvörðun og virði hana. Að sjálfsögðu ræddum við þetta áður og auðvitað eru alls konar hliðar á þessu. En ég tel að hann hafi gert rétt með þessu,“ segir Katrín. Hún hafi hvorki krafist þess né óskað eftir að Bjarni myndi víkja. Stór verkefni fram undan Formenn stjórnarflokkanna ræddu málin í Stjórnarráðinu í dag. Spurð hvað þeirra fór í milli segir Katrín að formennirnir þrír hafi einfaldlega þurft að fara yfir stöðuna. „Eðli málsins samkvæmt hefur það áhrif á samstarf þessara flokka þegar formaður eins flokksins ákveður að víkja úr sínu embætti.“ Ríkisstjórnin takist nú á við stór verkefni, einkum og sér í lagi efnahagsmálin. Stór pólitísk ákvörðun Katrín segir ekki hafa komið til tals milli sín og Bjarna að til afsagnar hans kæmi, ef niðurstaða Umboðsmanns yrði sú sem síðar varð raunin. „Hins vegar upplýsti fjármálaráðherra mig um þetta álit fyrir fram, og við ræddum það bara eins og samstarfsmenn gera, þeir ræða málin frá ólíkum hliðum. Að lokum er þetta hans ákvörðun og ég held að hún sé ansi stór í pólitísku samhengi.“ Katrín telji ríkisstjórnarsamstarfið standa traustum fótum, og segir að forystulið ríkisstjórnarinnar sé enn það sama, þrátt fyrir afsögn eins formanna úr embætti. Næstu dagar fari í að fara yfir stöðu efnahagsmála og framhaldið. Í kjölfarið verði boðað til ríkisráðsfundar þar sem afsögn Bjarna fari í formlegt ferli. Þú átt ekki von á því að ríkisstjórnin muni springa á næstu dögum vegna þessarar ákvörðunar? „Nei. Ég held að við séum sammála um að við viljum leggja mikið á okkur til þess að takast á við þessu stóru verkefni,“ segir Katrín. Nýr fjármálaráðherra fái vinnufrið Fjármálaráðherra sagði á fundinum í dag að ekkert lægi fyrir um hvort hann tæki við öðru ráðherraembætti, sæti áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins eða sæti áfram á þingmanni. Aðspurð hvort hún væri fylgjandi því að Bjarni tæki við öðru ráðuneyti sagði Katrín að ákvörðunin sem kynnt var í dag snerist fyrst og fremst um fjármálaráðuneytið. „Að fjármálaráðherra fái vinnufrið og að hann axli sína ábyrgð á því sem lýtur að þessari framkvæmd á sölunni á Íslandsbanka. Það er ekkert útilokað um framhaldið í því.“ Ekki hafi verið rætt hvort Bjarni taki við öðru ráðuneyti. Það sé vel hugsanlegt, en hafi ekki verið rætt. Því hefur meðal annars verið velt upp að Bjarni taki við utanríkisráðuneytinu, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir taki við fjármálaráðuneytinu. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í dag að hann teldi mikið til í þeim vangaveltum. Hafa ekki rætt hver fær fjármálaráðuneytið Bjarni er ekki eini ráðherrann sem Umboðsmaður Alþingis hefur verið með til skoðunar, en hann er einnig með til athugunar hvort Svandís Svavarsdóttir hafi gerst brotleg við stjórnsýslulög þegar hún setti reglugerð sem bannaði hvalveiðar snemma í sumar. Katrín sagðist hafa heyrt vangaveltur um að ef Umboðsmaður finni sambærilega vankanta á framkvæmd Svandísar megi vænta þess að hún segi einnig af sér. Það taki þó engu tali að ræða um það að svo stöddu. Umboðsmaður Alþingis hefur skilað áliti um vanhæfi Bjarna í Íslandsbankasölunni. Nú skoðar hann hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur.Vísir/Arnar „Ég hef heyrt vangaveltur um þetta í dag. Auðvitað er það þannig að Umboðsmaður er oft með ansi marga ráðherra til skoðunar, og embættisfærslur okkar. Ég held að það hafi nú lítið upp á sig að vera að tjá sig um slík mál í einhverjum viðtengingarhætti. Þessi mál geta verið eðlisólík og annað, þannig að við skulum bara bíða og sjá með það.“ Munu Vinstri græn vilja fá fjármálaráðuneytið? „Við höfum ekki rætt málin út frá þessum forsendum. Á fundi okkar þriggja [formanna ríkisstjórnarflokkanna] í dag þá vorum við fyrst og fremst að ræða stóru myndina, verkefnin og hvernig við getum tryggt það að við förum sterkari út úr þessu en við fórum inn í það,“ segir Katrín. Hún eigi ekki von á að boðað verði til kosninga fyrr en til hafði staðið, en miðað við fullt kjörtímabil eru næstu Alþingiskosningar á dagskrá haustið 2025. „Það hefur ekkert gerst sem kallar á það, allavega að sinni.“
Afsögn Bjarna sem fjármálaráðherra Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Salan á Íslandsbanka Efnahagsmál Alþingi Mest lesið Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Innlent Titringur í hreppnum vegna lögheimilisflutninga Innlent Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins Innlent Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Innlent Falsað myndband af kennara og nemanda fór í dreifingu Innlent Brunaði austur til að finna litla frænda Innlent Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Innlent Sigmundur seinn: „Er þingmaðurinn í salnum?“ Innlent Halla tekur sér frí og vill að karlmenn axli ábyrgð Innlent Stöðugleiki norðlægrar hringrásar skammgóður vermir fyrir Ísland Innlent Fleiri fréttir „Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Þriggja ára fangelsi eftir flug frá Berlín Fann aldagamlan mun, brást hárrétt við og langar að gerast fornleifafræðingur Brunaði austur til að finna litla frænda „Þá erum við að tala um 60 milljarða í töpuðum útflutningstekjum“ Kvíðið starfsfólk, handtökur og fornminjafundur Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Lúkas Geir áfrýjar eins og hinir tveir Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Landsnet fagnar sigri í baráttu við landeigendur Falsað myndband af kennara og nemanda fór í dreifingu Nýr lögreglustjóri á Austurlandi verði skipaður á allra næstu dögum Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins „Við finnum fyrir mikilli spennu frá heimsbyggðinni“ Verktakar hafi greinilega nóg því þeir kjósi frekar að bíða en lækka Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Guðmundur til ráðherra og framkvæmdastjóri HK tekur við Sjaldan eins erfitt að kaupa fasteign og konur undirbúa verkfall Titringur í hreppnum vegna lögheimilisflutninga Sigmundur seinn: „Er þingmaðurinn í salnum?“ Halla tekur sér frí og vill að karlmenn axli ábyrgð Embættismenn sitji að hámarki í fjórtán ár og aðstoðarmenn hætti fyrir kosningar Engin lausn og ákveðin sjálfsblekking að banna börnum að nota tölvuleiki Stöðugleiki norðlægrar hringrásar skammgóður vermir fyrir Ísland Kröfur kvennaárs komnar í innheimtu og gjalddaginn fallinn Segir tilvalin íbúðasvæði opnast með Sundabraut Niðurrif hafið á gamla Morgunblaðshúsinu Næstum öllum sagt upp hjá dótturfélagi Play „Ég skoðanakúgaði sjálfa mig í þágu friðar og þæginda félagslega“ Burðardýr fengu þungan dóm fyrir kókaínsmygl Sjá meira
Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Innlent
Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda
Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Innlent