Rússnesk kona hefur verið með nál í heilanum í áttatíu ár Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 4. október 2023 21:56 Nálin sást á tölvusneiðmynd, sem tekin var á tölvusneiðmyndartæki. Getty/ JohnnyGraig Læknar á Sakhalín-eyju í Rússlandi uppgötvuðu þriggja sentímetra nál í heila gamallar konu í gegnum tölvusneiðmynd á dögunum. Nálin er sögð hafa verið í heila konunnar í áttatíu ár.
Í tilkynningu frá heilbrigðisyfirvöldum á eyjunni kemur fram að talið sé að konan sé fórnarlamb tilraunar til barnamorðs af völdum foreldra hennar. Tilraunin er sögð hafa átt sér stað á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar, þegar mikil hungursneyð ríkti í Sovíetríkjunum og algengt var að foreldrar beittu tiltækum brögðum til þess að ráða börnum sínum bana án þess að það kæmist upp. Þá kemur fram að nálin liggi í gegnum vinstra hvirfilblað konunnar, en hún hafi ekki haft tilætluð áhrif. Konan hafi raunar aldrei kvartað undan óeðlilegum höfuðverkjum og af nálinni stafi nú í raun engin hætta. Hún sé nú undir viðeigandi lækniseftirliti. Læknar konunnar segjast ekki ætla að gera atlögu að því að ná nálinni úr höfði hennar af ótta við að ástand hennar versni við það.
Rússland Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Fleiri fréttir Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sjá meira