Búin að bíða lengi eftir bóluefni við RS fyrir yngstu börnin Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2023 07:02 Valtýr Thors segir kostnaðinn oft verulegan fyrir fjölskyldur þegar börn veikjast mikið. Vísir/Arnar Sýkingar af völdum RS veiru er algengasta ástæða innlagnar ungra barna á spítala á Íslandi. Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með því að nýtt bóluefni gegn RS fái markaðsleyfi. Barnasmitsjúkdómalæknir segir það spennandi.
Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu mælti fyrir því í sumar að bóluefnið Abrysvo fengi markaðsleyfi. Það er fyrsta bóluefnið sem ætlað er að verja börn fyrstu sex mánuði ævinnar gegn sýkingu af völdum RS veiru. Sýkingar af völdum veirunnar er algengasta ástæða innlagna barna á sjúkrahús um alla Evrópu. Á Íslandi hefur innlögnum farið fjölgandi síðustu tíu ár. Langflest þeirra sem leggjast inn eru á fyrsta aldursári. „Þetta eru í rauninni ótrúlega spennandi tímar framundan í þessum fyrirbyggjandi aðgerðum gegn RS veirunni. Eins og flestir vita er RS veiran mjög svona skaðleg og veldur ótrúlega mikilli sjúkdómsbyrði, sérstaklega á yngstu aldurshópana,“ segir Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir. Hann segir að faraldur veirunnar komi á hverju ári og að það muni öll börn fá hana. En að miklu máli skipti hvenær það gerist. „Við erum búin að bíða mjög lengi eftir bóluefni sem ætti að geta varið þennan yngsta aldurshóp. Langflest börn sýkjast á fyrstu tveimur árunum og hugmyndin með þessu er dálítið að ef við getum seinkað sýkingunni drögum við úr hættunni að börn þurfi að leggjast inn. Að þau glími betur við sýkinguna þegar þau eru orðin aðeins eldri,“ segir Valtýr og að ónæmiskerfi þeirra sé þá orðið betur þroskað og þau stærri og sterkari og glími betur við fylgikvillana. Fyrir fullorðna getur RS verið eins og vægt kvef en fyrir yngstu börnin getur það verið aðeins erfiðara. Þau geta fengið mjög erfiðan hósta einkenni eins og við lungnabólgu, upplifað erfiðleika við öndun eða að nærast og fengið bakteríusýkingar eins og eyrnabólga eða lungnabólga. Sum endi í öndunarvél Valtýr segir að þegar börnin þurfa að leggjast inn sé oftast um að ræða stuðningsmeðferð til að glíma við þessi einkenni en að stundum sé ástandið enn verra. „En svo börn verða svo alvarlega veik að þau ráða ekki við að anda sjálf og enda hreinlega í öndunarvél og það gerist á hverju ári hérna hjá okkur. Hann segir RS og sýkingar af völdum veirunnar stóran part af því sem starfsfólk glími við á Barnaspítalanum, sérstaklega um mestu vetrarmánuðina. „Frá desember og janúar og fram í mars eða apríl. Faraldrarnir koma alltaf og eru misslæmir en við finnum alltaf verulega vel fyrir þeim. Mörg börn þurfa að leggjast inn og þurfa stuðning á meðan því stendur og því finna fjölskyldur þeirra einnig vel fyrir þessu.“ Erfitt í bland við inflúensu Hann segir faraldurinn hafa dottið niður í Covid en hafi verið erfiður eftir það, og sérstaklega þegar hann blandast við inflúensu. „Þá erum við mjög oft að glíma við mjög mörg veik börn. Sem veldur álagi.“ Hann segir að þrátt fyrir að Lyfjastofnun Evrópu mæli með þessu þurfi margt að gerast áður en lyfið er komið á markað og í notkun. Abrysvo sé bóluefni sem sé fyrir þungaðar konur og verji börnin fyrstu sex mánuði ævi sinnar. „En svo er annað sem er væntanlega á markað og það er eiginlegt mótefni sem er beint gagnvart RS-veirunni og það er líka rosalega spennandi.“ Valtýr segir bóluefni oft dýr þegar þau eru ný. En þegar verði tekin ákvörðun um notkun verði að líta á meira en bara verðmiðann. „Fyrir utan auðvitað sjúkdómsbyrðina sem leggst á fjölskyldur er umtalsverður kostnaður, peningalegur, fyrir fjölskyldur og samfélagið í heild sinni. Fólk missir fjölda daga úr vinnu og við höfum tekið þetta saman fyrir Ísland og kostnaðurinn leikur á nokkur hundruð milljónum á hverju ári.“
Lyf Heilbrigðismál Börn og uppeldi Bólusetningar Tengdar fréttir Dæmi um að börn hafi verið hætt komin vegna streptókokkasýkingar Dæmi er um að börn hafi verið hætt komin og verið lögð inn á gjörgæslu vegna hættulegrar streptókokkasýkingar sem nú gengur yfir. Sérfræðingur í barnasmitsjúkdómum segir alla á tánum vegna ástandsins. 10. janúar 2023 21:01 Fjórar pestir að grassera og mikið um innlagnir vegna streptókokka Fyrir helgi lágu þrettán inni á Landspítala með Covid-19, þar af einn á gjörgæsludeild. Kórónuveiran, RS-veiran, inflúensa og streptókokkar eru þeir smitsjúkdómar sem helst eru að grassera í samfélaginu í dag og óvenju margir hafa verið lagðir inn sökum síðastnefnda. 6. febrúar 2023 06:59 Mest lesið Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira
Dæmi um að börn hafi verið hætt komin vegna streptókokkasýkingar Dæmi er um að börn hafi verið hætt komin og verið lögð inn á gjörgæslu vegna hættulegrar streptókokkasýkingar sem nú gengur yfir. Sérfræðingur í barnasmitsjúkdómum segir alla á tánum vegna ástandsins. 10. janúar 2023 21:01
Fjórar pestir að grassera og mikið um innlagnir vegna streptókokka Fyrir helgi lágu þrettán inni á Landspítala með Covid-19, þar af einn á gjörgæsludeild. Kórónuveiran, RS-veiran, inflúensa og streptókokkar eru þeir smitsjúkdómar sem helst eru að grassera í samfélaginu í dag og óvenju margir hafa verið lagðir inn sökum síðastnefnda. 6. febrúar 2023 06:59