Skoðun

Hvalreki eða Maybe Mútur?

Pétur Heimisson skrifar

Meðal frægustu hvala sögunnar er Moby Dick í samnefndri skáldsögu frá miðri 19. öld. Sagan hefur staðist tímans tönn og ku hafa opnað á fjölbreytilegar túlkanir í takt við tíðaranda hverju sinni. Það þakka sumir tvíræðninni sem einkennir lýsingu höfundarins, Herman Melville, á hvalnum. Hverfum nú frá þessum fræga hval og snúum okkur að nýlegum gjafagjörningi í Seyðisfjarðarhöfn.

(Hag)sælla að gefa en þiggja

Olíuleki úr stríðsskipinu El Grilló á botni Seyðisfjarðar hefur lengi verið ógn við lífríkið. Öll viljum við að draga megi úr og helst koma í veg fyrir þessa vá. Í þeim efnum er kannski sama hvaðan gott kemur eða hvað? Nýverið aðstoðaði Fiskeldi Austfjarða sveitarfélagið Múlaþing við þetta mikilvæga verk og var „gjöf“ fyrirtækisins metin á 6-8 milljónir króna. Án efa var það vel meint af hálfu bæði fyrirtækisins og Múlaþings, en er það nóg og er með því öll sagan sögð? Gildir það hugsanlega hér að æ sé gjöf til gjalda og að viðskipti án aura kalli á að eitthvað verði kaup kaups?

Slíkra spurninga og fleiri er eðlilegt að spyrja og beinlínis skylt að spyrja hvort slíkur gjörningur samræmist þeim siða- og verklagsreglum sem starfsmönnum er annast innkaup fyrir sveitarfélög er ætlað að vinna eftir. Séu slíkar reglur ekki til, er þá ekki eðlileg krafa að setja þær? Í þessu samhengi má vísa í að í Viðmiðum um góða starfshætti fyrir starfsmenn sem annast opinber innkaup kemur meðal annars fram að „ Innkaupastarfsmenn skulu tryggja að þeir standi ekki í þakkarskuld eða séu að einhverju leyti háðir fyrirtækjum sem hlut eiga að máli...“ (2014, II. Sérstakar reglur fyrir innkaupastarfsmenn). Með vísan í þetta hlýtur almenningur að eiga geta gert þá kröfu á stjórnarhætti hins opinbera að það standi ekki í óljósri skuld við fjársterka hagsmunaaðila.

Milljónaspurning úr sal

Andstaða Seyðfirðinga við laxeldi í firðinum er löngu kunn. Eftir óralanga bið héldu forsvarsmenn áformaðs sjókvíaeldis íbúafund á Seyðisfirði í mars 2021. Einn fundargesta spurði hver væri munurinn á samfélagslegum styrkjum fyrirtækis og mútum? Svörin voru lítil og loðin. Mér fannst andstaða við eldið aukast eftir fundinn, en veit ei hvað meirihluta sveitarstjórnar Múlaþings fannst. Þau sem hann skipa ákváðu að kanna betur hug íbúanna. Svörin voru skýr, 75% Seyðfirðinga reyndust andvígir eldinu. Þrátt fyrir þá afgerandi andstöðu tekur meirihlutinn á engan hátt undir ákall íbúanna. Að þessu sögðu og með tvíræðni sögunnar um Moby Dick í huga er rökrétt að spyrja, líkt og viðmælandi minn ónefndur gerði nýverið, hvor nafngiftin hæfði áðurnefndum gjafagjörningi betur, Hvalreki eða Maybe Mútur?

Höfundur er íbúi í Múlaþingi og situr í umhverfis og framkvæmdaráði fyrir VG.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×