Innlent

Kölluð út vegna bráðra veikinda um borð í skemmti­ferða­skipi

Atli Ísleifsson skrifar
Útkallið barst upp úr klukkan áttta í morgun.
Útkallið barst upp úr klukkan áttta í morgun. LHG

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna bráðra veikinda manns um borð í skemmtiferðaskipinu Celebrity Summit um klukkan átta í morgun.

Sagt er frá þessu á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar en skipið var statt um fimmtíu sjómílur norður af Látrabjargi þegar útkallið barst.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að um hafi verið að ræða karlmann á áttræðisaldri.

Fram kemur að vel hafi gengið að hífa manninn um borð í þyrluna og hafi hann í kjölfarið fluttur á Landspítalann í Fossvogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×