Lífið

Ekki þverfótað fyrir fólki sem fagnaði fjölbreytileikanum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Mannmergðin var litrík.
Mannmergðin var litrík. vísir/sigurjón

Eins og búast mátti við var mikið um dýrðir á Gleðigöngu hinsegin daga sem fór fram í dag. 

Gangan hófst við Hallgrímskirkju og endaði við Hljómskálagarð á útitónleikum. Helena Rós fréttamaður okkar lýsti stemningunni þannig í útvarpsfréttum þannig að ekki væri þverfótað fyrir fólki í miðborginni. 

„Það er óhætt að segja að allir séu í góðu skapi enda ótrúlega gott veður. Vagnarnir litríkir og þeim fylgdi mikill hávaði. Þegar Páll Óskar mætti á svæðið lá við að hljóðhimnurnar myndu springa,“ sagði Helena Rós.

Pallavagninn stóð fyrir sínu.

„Velkomin til Íslands, Venesúela. Það er nóg pláss fyrir öll blómin í þessum garði,“ sagði Páll Óskar áður en hann setti á næsta slagara.

Eftirfarandi myndir eru frá göngunni í dag.

Kiki vagninn var glæsilegur.vísir/sigurjón
Mikil stemning.vísir/sigurjón
Mikil gleði. vísiri/sigurjón
Ungir sem aldnir gengu fylktu liði.vísir/sigurjón
Diplómatar styðja hinsegin daga.vísir/sigurjón
Mannmergðin var litrík.vísir/sigurjón
Dragdrottningar létu sig ekki vanta.vísir/sigurjón





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.