Komast í sögubækurnar með öðrum sigri á Serbum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júlí 2023 10:00 Ísland mætir Serbíu í lokaleik sínum á HM. IHF/Sasa Pahic Szabo/kolektiff Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri getur tryggt sér bronsverðlaun á HM með sigri á Serbíu í dag.
Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi, 37-30, í undanúrslitum á HM í gær. Þetta var fyrsta tap íslenska liðsins á mótinu. Serbía tapaði einnig í undanúrslitum í gær, fyrir Þýskalandi í miklum markaleik, 40-30. Serbar héngu í Þjóðverjum framan af leik en í seinni hálfleik voru heimamenn sterkari og unnu tíu marka sigur. Þeir mæta Ungverjalandi í úrslitaleiknum seinna í dag. Leikur Íslands og Serbíu hefst klukkan 13:30 að íslenskum tíma. Með sigri vinna íslensku strákarnir brons og jafna þar með besta árangur Íslands á HM í þessum aldursflokki. Ólafur Stefánsson, Dagur Sigurðsson, Patrekur Jóhannesson og félagar unnu brons á HM í Egyptalandi fyrir þrjátíu árum. Heyra mátti á íslensku strákunum í viðtölum eftir leikinn í gær að þeir ætluðu að hrista vonbrigðin eftir tapið fyrir Ungverjum fljótt af sér og mæta kattfrískir í leikinn gegn Serbum. „Allar þessar fyrirmyndir sem náðu þessu og við ætlum að verða fyrirmyndir eins og þeir,“ sagði Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson um möguleikann á að komast í sögubækurnar. Ísland og Serbíu mættust í lokaumferð riðlakeppninnar á HM þar sem Íslendingar unnu þriggja marka marks sigur, 29-32. Símon Michael Guðjónsson skoraði átta mörk fyrir Ísland í leiknum og Andri Már Rúnarsson fjögur. Milos Kos skoraði níu mörk fyrir Serbíu. Hann skoraði einnig níu mörk gegn Þýskalandi í gær og er áttundi markahæsti leikmaður HM með 44 mörk.
Handbolti Landslið karla í handbolta Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Fleiri fréttir Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Dagur fagnaði sigri á móti Faxa EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Einar í ræktina en fær ekki að æfa með hópnum Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Íslendingar ættu frekar að vera hræddir „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Skýrsla Vals: Haukur í horni Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið EM í dag: Stóra Hauks Þrastar leiknum fagnað með pylsuveislu Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Snorri eftir stórsigur: „Í þessari stemningu og höll þarf ég ekki að segja mikið“ „Er í góðu standi og klár í hvað sem er“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Póllandi: Velkominn Haukur og Ýmir í vígahug Tölfræðin á móti Póllandi: Gísli með ellefu stoðsendingar Elliði svaraði fyrir slæman leik: „Skiptir meira máli að vinna en að ég spili vel“ Sögulegur færeyskur stórsigur á EM Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Svona var stuðið fyrir leik í Kristianstad „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Haukur Þrastar: Pólverjarnir eru komnir með sterkan kjarna Snorri Steinn: Erum komnir með meira í vopnabúrið Stærsta stund strákanna okkar Andri einn og yfirgefinn: „Held ég hafi sloppið“ Sjá meira