Lífið

Óskars­verð­launa­leikarinn Alan Arkin látinn

Máni Snær Þorláksson skrifar
Leikarinn Alan Arkin er látinn, 89 ára að aldri.
Leikarinn Alan Arkin er látinn, 89 ára að aldri. EPA/David Swanson

Bandaríski leikarinn Alan Arkin er látinn, 89 ára að aldri. Hann vann til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Little Miss Sunshine árið 2006. Þá vann hann einnig til tveggja Tony-verðlauna á ferlinum.

Greint var frá andláti Arkin í yfirlýsingu frá sonum hans, þeim Adam, Matthew og Anthony. „Faðir okkar var einstaklega hæfileikaríkur, bæði sem listamaður og sem manneskja,“ segir í yfirlýsingunni.

„Elskulegur eiginmaður, faðir, afi og langafi. Hann var elskaður og hans verður sárt saknað.“

Arkin á langan feril að baki í bransanum og lék í kvikmyndum á borð við Edward Scissorhands, Argo og Little Miss Sunshine. Fyrir þá síðastnefndu vann hann Óskarsverðlauninn fyrir leik í aukahlutverki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.