Skoðun

Ég er bóka­þjófur

Þórhallur Gunnarsson skrifar

Fyrir nokkuð mörgum árum stundaði ég samviskulaust bókaþjófnað. Ég var góðvinur bóksölu Máls og menningar á Laugavegi og þegar enginn sá til renndi ég bók undir úlpuna og labbaði flóttalega út úr búðinni.

Leiðin lá í nálæga fornbókaverslun þar sem eigandinn sem keypti bókina af mér á hálfvirði. Þessi glæpaferill minn stóð ekki lengi, ég var gripinn með bók Halldórs Laxness, Seiseijú, mikil ósköp í þriðju ránsferðinni.

Ég gleymi ekki vonbrigðasvipnum á mömmu þegar upp um mig komst og hét því að stela aldrei aftur.

Ég fæ ennþá sting í magann þegar ég kem í húsnæði þessarar bókabúðar og það sem meira er… ég gæti ekki hugsað mér að lesa þessa bók Laxness.

Ég var þrettán ára þegar þetta átti sér stað og afbrotaferlinum lauk snarlega.

Í vikunni var áhugavert viðtal við mann á miðjum aldri á Vísi. Hann lýsir því stoltur hvernig hann selur aðgang að íslensku sjónvarpsefni með ólöglegum hætti. Hann segist gera þetta af manngæsku og eingöngu til að hjálpa gamla fólkinu á Spáni.

Fyrir góðmennskuna tekur hann háar fjárhæðir en gleymir að segja gamla fólkinu að þau geti auðveldlega án hans milligöngu fengið aðgang að íslenskum sjónvarpsstöðvum þótt þau búi erlendis.

RÚV fá þau í gegnum nefskatt og auðvelt er að fá aðgang að Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport og Sjónvarpi Símans. Þau þurfa aðeins að taka myndlykilinn með sér til Spánar eða sækja app þessara miðla sem tekur 2 mínútur.

Margir Íslendingar hafa státað sig af þjófnaði á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum í gegnum tíðina og finnst þeir svolítið snjallir að komast yfir þetta efni á þess að greiða fyrir það.

Þessir aðilar velta ekki fyrir sér frekar en þrettán ára bókaþjófurinn að með þessu ertu að skerða tekjur þeirra sem skapa efnið.

Ég sé lítinn mun á því að stela bók sem kostar 5000 kr. í bókaverslun eða stela t.d. áskrift að Stöð 2+ sem er á sama verði.

Í gær bárust fréttir af þungum fangelsisdómum í Bretlandi og umfangsmikilli lögregluaðgerð í Hollandi með stuðningi Interpol vegna sölu fullorðinna manna á illa fengnu sjónvarpsefni. Ósanngjörn niðurstaða fyrir fórnfúsa vini eldri borgara?

Ég veit það ekki. En hitt veit ég að sem fyrrverandi bókaþjófur á Íslandi þá dauðskammast ég mín enn niður í tær. Vonandi finna þeir sem stunda þjófnað á kvikmyndum og sjónvarpsefni í það minnsta til smá sektarkenndar.

Höfundur er framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar.




Skoðun

Sjá meira


×