Lífið

Segjast ekki vera par þrátt fyrir rómantíska kvöld­stund á MET

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Wintour og Nighy mættu saman á rauða dregilinn.
Wintour og Nighy mættu saman á rauða dregilinn. Getty/Jeff Kravitz

Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue, og leikarinn Bill Nighy hafa hafnað því að vera par. Sögusagnir þess efnis hafa flogið í hæstu hæðum eftir að þau gengu saman rauða dregilinn á Met Gala á mánudag. 

Sögusagnir um ástarsamband Nighy og Wintour hafa flogið um margra ára skeið en þau ávallt tekið fyrir það og sagst vera góðir vinir. Það fór því allt á flug þegar þau gengu saman rauða dregilinn á Met á mánudag. Almennt hefur það þótt, að ganga saman rauða dregilinn, staðfesting á sambandi meðal stórstjarna vestanhafs.

Wintour og Nighy fylgdust að allt kvöldið.Getty/Jeff Kravitz

Wintour og Nighy virtust sannarlega ástfangin á dreglinum í New York: Brostu skært og hvísluðu hvort að öðru. Talsmaður Nighy hefur nú sagt við slúðurmiðilinn Page Six að þau hafi einfaldlega verið góðir vinir í tvo áratugi. Þau séu ekki saman.

Wintour og Nighy ásamt leikstjóranum Oliver Hermanus. Myndin er tekin á viðburði í desember síðastliðnum sem Wintour skipulagði, þar sem kvikmynd Nighy og Hermanus, Living, var sýnd fyrir valda gesti.Getty/Dia Dipasupil

Talsmenn Wintour vildu ekki tjá sig um slúðursögurnar en heimildarmaður, sem á í nánu sambandi við hana, sagði í samtali við Page Six að myndirnar töluðu sínu máli. 

Wintour og Nighy saman á tískusýningu í Lundúnum árið 2012.Getty/Samir Hussein

Tengdar fréttir

Kisur, brúðar­kjólar og glimmeraðir þvengir á Met Gala

Stórstjörnur heimsins sameinuðust á listasafninu The Met í gærkvöldi, fyrsta mánudag maí mánaðar, í tilefni af Met Gala. Er um að ræða árlegan góðgerðarviðburð sem hefur fyrir löngu skráð sig í sögubækurnar sem einn stærsti og glæsilegasti tískuviðburður ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.