Leikskólavandinn? Hópur leikskólakennara og starfsfólks leikskóla í Reykjavík skrifar 22. mars 2023 16:31 Það þarf að leysa vanda leikskólanna áður en leikskólavandi borgarinnar, eins og hann er kallaður, verður leystur. Fulltrúar borgarinnar í fjölmiðlum eru að reyna að svara mótmælum frá foreldrum og atvinnulífi en gleyma að líta inn á leikskólana sjálfa og sjá raunverulega vandann sem er jú þeirra að leysa. Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson nefnir í viðtali þann 16. mars 2023 að Reykjavík standi sig betur en önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu í leikskólamálum. Það sem skilji okkur frá öðrum er að við séum með raunverulegar áætlanir meðal annars að 600 ný leikskólapláss hafi bæst við með nýjum leikskólum, hann talar um fjármuni til að ráða fleira starfsfólk. Starfsfólk sem er ekki til, þar sem að leikskólastigið hefur vaxið langt umfram fjölgun leikskólakennara. Við viljum að í leikskólum starfi hæft fólk til að mæta þörfum barna sem eru jafn misjafnar og þær eru margar. Biðlistarnir eru ekki bara einhver börn á blaði, þetta eru börn með ólíkar þarfir sem eiga rétt á sérfræðiþekkingu til að mæta þeim. Til þess að mega kalla sig kennara þarf að ljúka 5 ára háskólanámi. Sérfræðinám um leik, þroska og nám ungra barna. Á vef Reykjavíkurborgar er auglýst eftir fyrirmyndum og ekki gerðar frekari kröfur fyrir fólk að koma vinna í leikskólum, annað en að vera „glöð, jákvæð, traust og vera tilbúin til að tileinka sér fagleg vinnubrögð. Íslenskukunnátta er mikilvæg, en það er líka engin betri staður til að læra tungumálið en í leikskólanum!“ Að miðla fagmennsku og tungumálinu á samkvæmt þessu að vera í höndum leikskólakennarana, í leikskóla þar sem börn eru sjálf að læra á lífið, læra tungumálið og eru á viðkvæmu máltökuskeiði, mörg börn sem þurfa málörvun og annan stuðning sem krefst sérfræðiþekkingar. Við höfum bara ekki tíma til að kenna fullorðnum líka. Með þessari atvinnuauglýsingu er verið að gefa í skyn að hver sem er geti unnið vinnuna sem við höfum sérhæft okkur í. Til hvers að fara í 5 ára háskólanám þegar þetta er viðhorfið? Í viðtali á mbl.is þann 15. mars sagði Árelía Eydís, formaður skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar: „Við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að bæta við plássum og hugsum í fjölbreyttum lausnum“. Árelía virðist skilja vandann sem við erum í og það kom einnig fram í Kastljósi þann 20. mars þar sem hún lýsti yfir áhyggjum sínum. Þar var Ragnhildur Alda einnig sem kom fram með innlegg Sjálfstæðisflokksins, þar sem að þetta hljómaði frekar einfalt „allir ættu að geta komið að borðinu og hjálpað okkur að leysa vandann, til dæmis með foreldrareknum leikskólum, starfsmannafélög sem gætu komið á fót einhverjum leikskólum og að fjölga grunnskólum sem taka inn 5 ára börn”. Skiptir engu máli hverjir sinna þessu starfi? Eiga börnin bara að fá pláss einhvers staðar hjá einhverjum? Hvar er virðingin fyrir kennurum, náminu og menntun yngstu barnanna? Það er kannski bara vonlaust að þjóðfélagið líti á okkur sem menntastofnun og beri virðingu fyrir okkar starfi þegar þetta er viðhorfið. Staðreyndin er samt sú að leikskólinn er fyrsta skólastigið samkvæmt lögum þó að það sé ekki skylda. Við viljum stíga skref til baka, hægja á stækkun leikskólakerfisins, lengja fæðingarorlof og auka nýliðun leikskólakennara. Það að skapa fleiri pláss leysir engan vanda þegar að langflestir leikskólar eiga nú þegar í mönnunarvanda að stríða. Þegar nýir leikskólar opnast færist svo mönnunarvandinn á milli leikskóla þegar fólk færir sig til í starfi. Að opna 5 ára deildir í skólum ýtir ennþá fleiri kennurum úr leikskólum yfir í grunnskóla en við höfum misst alltof mikið af fólki yfir því þar eru betri kjör, meiri möguleiki á yfirvinnu og almennt betra vinnuumhverfi í mun minna áreiti. Við megum ekki við því að missa fleiri heldur verðum við að berjast fyrir bættu starfsumhverfi í leikskólunum sjálfum. Starfsfólk í nýja leikskóla er ekki til og það er vanvirðing við leikskóla sem menntastofnun að kasta fram hugmyndum líkt og Ragnhildur Alda gerði í Kastljósi. Öll umræða sem hefur átt sér stað undanfarið er á forsendum atvinnulífsins og foreldra. Hver er að huga að hagsmunum þeirra sem verja dögunum innan veggja leikskólans? Starfsfólk og börn þurfa að fá rödd og þeirra skoðun þarf að vera tekin inn í þessa umræðu. Því hvað er leikskóli án leikskólakennara? Það þarf að huga að innviðum leikskólans, sem er starfsfólkið, starfsfólkið sem fær það allra dýrmætasta sem foreldrar eiga í hendurnar á morgnana. Við þurfum að fá rými til þess að sinna starfinu okkar. Við viljum leggja áherslu á mikilvægi þess að yngstu börnum verði bæði fækkað inn á deildum og einnig á hvern kennara → færri börn á hverri deild. Hljóðáreitið sem er inn á deild veldur mikilli streitu hjá bæði börnum og starfsfólki. Við viljum bjóða starfsfólki og börnunum okkar upp á besta umhverfið sem völ er á. Eins og staðan er í dag er það ekki að takast. Samningar leikskólakennara losna 31. mars og við teljum að þar eigi að byrja á því að koma leikskólastiginu á þann stall sem það á heima. Jöfnun launa á milli markaða er mjög nauðsynleg byrjun sem verður að fara markvisst og skipulega í. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að laun sérfræðinga í fræðslustarfsemi eru umtalsvert lægri en laun annarra hópa sérfræðinga. Sérstaklega á það við þegar samanburðurinn er gerður við laun sérfræðinga á almennum markaði. Þetta þarf að laga. Eins og sjá má er vandi leikskólanna margþættur og ætti borgin að forgangsraða að skapa því fólki sem nú þegar starfar í leikskólum vinnuumhverfi við hæfi áður en allt það fólk fer annað. Höfundar eru leikskólakennarar, nemar í leikskólakennarafræðum, þroskaþjálfar og annað starfsfólk í leikskólanum Rauðhól sem er handhafi Íslensku menntaverðlaunanna 2022. Aldís Björk Óskarsdóttir Alida Jakobsdóttir Andrea Stefánsdóttir Arletta Kuźniewska Bentína Þórðardóttir Birta Ethel Guðbjartsdóttir Bjarney Ingimarsdóttir Dagný Kristjánsdóttir Dóra Jóna Barkardóttir Edda Lydia Þorsteindóttir Elín Arna Tryggvadóttir Elsa Björk Einarsdóttir Eva Þórunn Kristinsdóttir Eydís Einarsdóttir Guðlaug Erla Jóhannsdóttir Heiðar Ingi Árnason Hildur Björg Eyjólfsdóttir Hrefna Ólafsdóttir Inga Ævarsdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Jónína Guðrún Reynisdóttir Katrín María Ágústsdóttir Kristín Þóra Helgadóttir Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir Magnea Arnardóttir Margrét Gígja Rafnsdóttir Sandra Valsdóttir Sigríður Sigurjónsdóttir Sigrún Axelsdóttir Sólveig Ólafsdóttir Una Þorgilsdóttir Unnur Gylfadóttir Zsuzsanna Oláhné Szentimrey Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun