Sigrar hjá Njarðvík og Val Smári Jökull Jónsson skrifar 8. mars 2023 20:57 Aliyah Collier átti góðan leik fyrir Njarðvík. Vísir/Vilhelm Njarðvík vann góðan sigur á Fjölni þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Þá vann Valur stórsigur á ÍR.
Njarðvík sat í fjórða sæti Subway-deildarinnar fyrir leikinn í kvöld en það er síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Fjölnir var hins vegar í 6.sætinu en liðið hefur verið að spila vel að undanförnu eftir að Brittany Dinkins gekk til liðs við liðið. Njarðvík tók frumkvæðið í byrjun og leiddi 31-20 eftir fyrsta leikhlutan. Fjölniskonur vöknuðu hins vegar í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn fyrir hlé. Staðan í hálfleik 45-38 fyrir Njarðvík. Leikurinn var áfram jafn og spennandi í síðari hálfleik. Fjölnisliðið minnkaði muninn í fjögur stig í þriðja leikhluta en annars munaði yfirleitt um tíu stigum á liðunum. Það voru síðan Njarðvíkurkonur sem höfðu sigur að lokum. Lokatölur 80-73 og þær styrkja þar með stöðu sína í fjórða sætinu. Aliyah Collier var stigahæst hjá Njarðvík með 20 stig og tók þar að auki níu fráköst og gaf sex stoðsendingar. Brittany Dinkins skoraði 24 stig fyrir Fjölni. Ásta Júlía átti góðan leik hjá Val.Vísir/Hulda Margrét Á heimavelli ÍR tóku Breiðhyltingar á móti Val. ÍR er í neðsta sæti deildarinnar á meðan Haukar eru í toppbaráttu og því var fyrirfram búist við frekar ójöfnum leik. Sú varð raunin. Valur leiddi 48-34 í hálfleik en bætti í eftir hlé. ÍR skoraði aðeins fimm stig í þriðja leikhluta og að lokum munaði meira en fjörtíu stigum á liðunum. Lokatölur 94-53. Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði 22 stig hjá Val og var stigahæst í þeirra liði. Greta Uuprus og Aníka Linda Hjálmarsdóttir voru stigahæstar hjá ÍR með tíu stig hvor.
Subway-deild kvenna Fjölnir UMF Njarðvík ÍR Valur Mest lesið „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Fótbolti ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn