Keypti kvöldmat fyrir heila viku á rúmar sex þúsund krónur Árni Sæberg skrifar 3. mars 2023 19:57 Katrín Björk er naglafræðingur og hefur einnig haslað sér völl á samfélagsmiðlinum Youtube. Bylgjan Katrín Björk Birgisdóttir keypti á dögunum hráefni í kvöldmat fyrir fjögurra manna fjölskyldu í heila viku fyrir litlar 6.500 krónur. Hún segir heilan kjúkling vera góð kaup og að mikilvægt sé að hafa í huga að ekki þarf að hafa heitan mat á hverju einasta kvöldi.
Katrín Björk hefur vakið mikla athygli fyrir myndskeið sem hún birti á Youtube-rás sinni á dögunum. Þar sýnir hún fylgjendum sínum hvernig hún fæðir heila fjölskyldu í heila viku fyrir aðeins um 6.500 krónur. Hún settist niður með þáttastjórnendum Reykjavík síðdegis í dag og lýsti því hvernig hún fer að því. Hún segir að fjölskyldan eyði að jafnaði tuttugu þúsund krónum í mat á viku og að hún og maðurinn hennar eldi sér mat heima til þess að borða í hádegismat í vinnunni. Drengirnir hennar tveir fái mat í skólanum. Þegar kemur að kvöldmatnum segir Katrín Björk að hún skipuleggi vikuna vel fram í tímann og kaupi inn með það að markmiði að matvæli nýtist í margar máltíðir. Þannig lýsir hún því að í vikunni, þegar hún eyddi aðeins 6.500 krónum í kvöldmatinn, hafi hún keypt heilan kjúkling, um 1750 grömm að þyngd, og nýtt hann í þrjár máltíðir. Fyrsta kvöldið eldaði hún hefðbundinn ofneldaðan kjúkling með tilheyrandi, kvöldið eftir kjúklingavefjur og þriðja kvöldið kjúklingasúpu.
Neytendur Verslun Fjármál heimilisins Matur Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira