Eins manns rusl er annars manns safnmunur Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 13. janúar 2023 10:03 Hér má sjá dæmi um umgengni á lóðinni. Vísir/Tryggvi Skipulagsráð Akureyrar hefur ákveðið að hefja álagningu dagsekta vegna umgengni á lóðinni að Sjafnarnesi 2. Álagning dagsekta mun hefjast eftir þrjá mánuði verði ekki bætt úr umgengni á svæðinu. Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar segir bæinn frekar vilja hvetja til lagfæringa en að vera með kvaðir. Lóðarhafar segjast föst milli steins og sleggju. „Þetta er lóð þar sem starfsemin hefur þróast smám saman til verri vegar. Þetta er búið að vera lengi og á lóðinni er mikið af járnadóti sem hefur teygt sig svolítið út fyrir lóðina. Lóðin er svolítið stök og þarna hefur að okkar mati umgengnin ekki verið í lagi,“ segir Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsstjóri. Hann nefnir að steypustöð og jarðvinnuverktakar séu á svæðinu. Hér má sjá hvernig staðan er á svæðinu.Vísir/Tryggvi „Þetta er ekki neitt safn í neinum bókum“ Við leit á netinu fann fréttamaður upplýsingar um Vinnuvélasafn Konráðs Vilhjálmssonar sem sagt er vera í Sjafnarnesi 2. Aðspurður hvort það sé staðsett á lóðinni segir Pétur svo ekki vera að mati bæjarins. „Þetta er athafnalóð sem við úthlutum en þessir aðilar eru að koma sér upp vinnuvélasafni [...] En þessi lóð er ekki fyrir neitt vinnuvélasafn og þetta er ekki neitt safn í neinum bókum,“ segir Pétur. Þar sé að finna dekk og muni þeim tengdum auk alls kyns hluta sem hægt sé að ímynda sér. Hér má sjá lóðina að Sjafnarnesi 2 og lóðarmörkin.Kortavefur Akureyrarbæjar Skoða má frekari loftmyndir af svæðinu á milli ára á kortavef Akureyrarbæjar sem má finna hér. Hann segir að verið sé að búa til stórt svæði undir vinnuvélarnar á Moldhaugnahálsi en einhver þúsund tonn af járni séu þegar komin þangað. Eins og loftmyndin sýni glögglega sé ekki um að ræða neins konar safn. Hér má sjá hvernig staðan er á svæðinu.Vísir/Tryggvi Hann segir bókunina hafa verið senda en landhafar hafi að sjálfsögðu andmælarétt. „Við erum eins og öll sveitarfélög að ýta í ýmsa menn að bæta umgengni. Þetta eru þeir sem eru kannski með mesta dótið,“ segir Pétur. Óskandi væri að þeir gerðu þetta sjálfir án þess að bærinn þyrfti að koma að þessu. Umgengnin sé ekki viðunandi. Betra sé að hvetja en að vera með kvaðir. Snúist mest um að hlutir utan lóðamarka séu fjarlægðir Halla Björk Reynisdóttir, formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar segir umganginn á lóðinni hafa verið eins og raun ber vitni í mörg ár. Umgengni á lóðinni hafi áður verið tekin fyrir, til dæmis af heilbrigðiseftirliti Norðurlands. Áður hafi verið reynt að tala við lóðarhafa en málið snúist að mestu um að hlutir sem komnir séu utan lóðarmarka séu fjarlægðir. Hér má sjá hvernig staðan er á svæðinu.Vísir/Tryggvi „Það hefur ekki gengið betur en svo að við töldum rétt að fara í sérstakt átak og fara þá þessa leið. Gefa þeim einhverja mánuði til þess að laga til og bregðast við en af öðrum kosti verði gripið til dagsekta. En auðvitað hafa þau andmælarétt og við eigum þá eftir að fá þau rök aftur til okkar þannig þetta svo sem tekur svolítinn tíma, ferlið sjálft,“ segir Halla. Hún segir tiltektarátakið lið í því að fá fyrirtækin til þess að hjálpa þeim við að taka til í bænum. Föst milli steins og sleggju Staðan lítur þó aðeins öðruvísi út fyrir lóðarhafa en einn af þeim er einn eigenda Steypustöðvar Akureyrar, Þór Konráðsson. Þór segir málið hafa verið í pattstöðu í ákveðinn tíma en skipulagsferli á landi í Hörgársveit sem ætlað sé til þess að geyma vinnuvélarnar og hýsa vinnuvélasafn sé á síðustu metrunum. Þeir sem sjái um landið hafi fengið þær upplýsingar frá Hörgársveit og Akureyrarbæ að ekki skildi hreyfa við mununum fyrr en geymslusvæði væri fundið og viðeigandi leyfi fengin. Skipulagsvinnan hafi dregist fram úr hófi hjá Hörgársveit. Munirnir verði fluttir þegar öll leyfi fáist en um er að ræða uppsetningu Vinnuvélasafns Konráðs Vilhjálmssonar. Þór segir að safnið muni vera staðsett á Skútum í Hörgársveit en skipuleggjendur hafi sankað að sér um 300 til 400 munum. Þá mun ýmis önnur starfsemi rísa á sama svæði. Safnið hefur verið í bígerð lengi en það var stofnað óformlega árið 1984. Aðspurður hvort honum finnist bókun skipulagsnefndar þá ekki ákveðin þversögn segist Þór halda að það hljóti annað fólk að vera í samskiptum við skipuleggjendur safnsins en þau sem ákveði þetta. Hann segist þó vera rólegur yfir úrskurði nefndarinnar. Skipulag svæðisins í Hörgársveit sé á lokametrunum en á meðan séu hendur þeirra bundnar. „Á meðan getum við ekki annað en beðið og leyft kerfinu að vinna sína vinnu,“ segir Þór. Hann bætir því við að hann hafi bara átt góð samskipti við Akureyrarbæ og Hörgársveit í allri skipulagsvinnu. „Við trúum því að þetta sé vanþakklátt starf en fólk eigi eftir að meta þetta af verðleikum þegar fram líða stundir,“ segir Þór að lokum. Bókun Akureyrarbæjar má sjá hér að neðan eða með því að smella hér. Bókun skipulagsnefndar Akureyrarbæjar Rætt um stöðu mála á lóðinni Sjafnarnesi 2 en fyrir liggur að umgengni hefur í langan tíma verið óviðunandi auk þess sem loftmynd sýnir að mikið af tækjum og öðrum lausamunum er utan lóðarmarka. Að mati skipulagsráðs er umgengni á lóðinni Sjafnarnesi 2 og nánasta umhverfi óviðunandi. Er skipulagsfulltrúa falið að fara fram á við lóðarhafa að gerðar verði úrbætur á ástandi svæðisins innan þriggja mánaða, að öðrum kosti verði lagðar á dagsektir. Felur það meðal annars í sér að fjarlægja þarf öll tæki og aðra lausamuni í eigu lóðarhafa sem eru utan lóðar. Akureyri Umhverfismál Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Varð að martröð“ Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira
„
Bókun skipulagsnefndar Akureyrarbæjar Rætt um stöðu mála á lóðinni Sjafnarnesi 2 en fyrir liggur að umgengni hefur í langan tíma verið óviðunandi auk þess sem loftmynd sýnir að mikið af tækjum og öðrum lausamunum er utan lóðarmarka. Að mati skipulagsráðs er umgengni á lóðinni Sjafnarnesi 2 og nánasta umhverfi óviðunandi. Er skipulagsfulltrúa falið að fara fram á við lóðarhafa að gerðar verði úrbætur á ástandi svæðisins innan þriggja mánaða, að öðrum kosti verði lagðar á dagsektir. Felur það meðal annars í sér að fjarlægja þarf öll tæki og aðra lausamuni í eigu lóðarhafa sem eru utan lóðar.
Akureyri Umhverfismál Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Varð að martröð“ Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira